Til baka í fundargerðir
Forsalir 1. Fyrirspurn um styrk til rafvæðingar í bílakjöllurum fjölbýlishúsa
Málsnúmer: 1909720
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2983. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og deildarstjóra gatnadeildar, dags. 17. desember, lögð fram umsögn um fyrirspurn um styrk til uppsetningar hleðslustöðva rafbíla við fjöleignahús frá húsfélaginu Forsölum 1. Einnig lagt fram minnisblað deildarstjóra gatnadeildar, dags. 17. desember, um fyrirkomulag hleðslustöðva fyrir rafbíla á bæjarlandi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að hafna erindinu.
02
Bæjarráð - 2972. fundur
Frá húsfélaginu Forsölum 1, dags. 27. september, fyrirspurn um styrk til rafvæðingar rafbíla í bílakjöllurum fjölbýlishúsa.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfissviðs.