Bæjarráð - 3055. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaðurBoðaði forföllHelga Hauksdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaðurBoðaði forföllDonata Honkowicz Bukowska - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagt fram yfirlit 6 mánaða uppgjörs Kópavogsbæjar 2021.
Lagt fram.
Gestir
- Kristín Egilsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 09:47
- Ingólfur Arnarson, fjármálastjóri - mæting: 09:47
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir fyrstu 6 mánuði 2021.
Lagt fram.
Gestir
- Ingólfur Arnarson, fjármálastjóri - mæting: 10:51
- Kristín Egilsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 10:51
03
Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir, óskar eftir skýringum á nýju útboði Fossvogsbrúar og stjórnkerfi verkefnisins.
Frá lögfræðideild, dags. 16.08.2021, lögð fram samantekt á útboðsferli og stjórnkerfi Fossvogsbrúar. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 19.08.2021.
Bæjarráð frestar erindinu.
Umræða um uppbyggingu á skíðasvæðum.
Umræður.
Gestir
- Einar Kristján Stefánsson byggingar- og umhverfisverkfræðingur - mæting: 08:15
- Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH - mæting: 08:15
- Magnús Árnason framkvæmdastjóri skíðasvæðana - mæting: 08:15
Frá Netgenginu ehf., dags. 20.08.2021, lagt fram erindi þar sem sem óskað er eftir umsögn eða athugasemdum sveitarfélagsins varðandi heimsendingar með drónum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
9.8 - 2106583 - Eftirskólaúrræði fyrir framhaldsskólanema
Greinargerð deildarstjóra dags. 19.8.21, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að stofnað verði eftirskólaúrræði til samræmis við tillögu starfsmanna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Velferðarráð telur mikilvægt að fyrir árslok 2021 liggi fyrir áætlun til framtíðar um hvernig eftirskólaþjónustu við framhaldsskólanemendur verði háttað í bæjarfélaginu, m.a. m.t.t. staðsetningar og faglegrar stjórnunar. Velferðarráð leggur áherslu á að slík áætlun verði unnin í samstarfi við menntasvið.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.9 - 2105166 - Ás styrktarfélag - viðauki við samning um Vinnu og virkni
Viðauki við samning við Ás styrktarfélag lagður fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti viðauka við samning við Ás styrktarfélag. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirrituð þakkar fyrir greinargóða skýrslu"
Theódóra S. Þorsteinsdóttir.
11
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að fá kynningu á hjólreiðaáætlun Kópavogs.
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 06.07.2021, lögð fram beiðni um að fá kynningu á hjólreiðaáætlun Kópavogs. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 05.08.2021 og 19.08.2021.
Kynnt.
Gestir
- Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 08:52
- Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:52
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 06.07. 2021, lögð fram beiðni um að fá kynningu á Arnarnesvegi. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 05.08.2021.
Kynning.
Gestir
- Ómar Ingþórsson landslagsarkitekt hjá Eflu - mæting: 09:14
- Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 09:14
- Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi - mæting: 09:14
13
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um stöðuna á viðaukatillögum er varðar skipulag í Glaðheimum og í Hamraborg
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 26.07.2021, lögð fram beiðni um upplýsingar um stöðu viðaukatillagna er varða skipulag í Glaðheimum og í Hamraborg. Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 05.08.2021.
Kynning á stöðu málsins.
Gestir
- Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi - mæting: 09:04
- Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 09:04
Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, dags. 24.08.2021, lögð fram fyrirspurn um heimastyrk til foreldra.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.