Bæjarráð - 2989. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllÁrmann Kristinn Ólafsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarlögmanni, dags. 5. febrúar, lagt fram erindi um afturköllun lóðarinnar Markavegur 8 þar sem lóðargjöld hafa ekki verið greidd þrátt fyrir ítrekun þar um.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Frá sviðsstjóra menntasviðs, lagt fram svar við fyrirspurn um aðgerðir í leikskólamálum frá 16. janúar. Lögð fram samantekt um umbótaaðgerðir í starfsumhverfi leikskóla Kópavogs á árunum 2014-2019, ásamt kostnaðargreiningu vegna búnaðarkaupa, yfirliti yfir framkvæmdir og viðhaldskostnað og spá um þróun faghlutfalls í leikskólum næstu 5 árin.
Lagt fram og vísað til kynningar leikskólanefndar.
Bókun bæjarráðs:
"Á síðustu árum hefur markvisst verið unnið að því að bæta starfsumhverfi barna og starfsmanna í leikskólunum. Brugðist hefur verið við aðstæðum með margvíslegum aðgerðum sem miðað hafa að því að bæta aðbúnað, styrkja faglegt starf, bæta mönnun og auka stöðugleika í starfsmannahaldi og styrkja vellíðan barna og starfsmanna.
Aðgerðir eins og námsstyrkir til starfsmanna til að sækja nám í leikskólafræðum, launuð námsleyfi fyrir leikskólakennara, fjármagn í þróunarsjóð leikskóla og aðrar þær fjölmörgu aðgerðir sem koma fram í minnisblaði sviðstjóra menntasviðs, hafa borið góðan árangur og mun skila sér til framtíðar fyrir börn og starfsfólk í Kópavogi."
Gestir
- Sigurlaug Bjarnadóttir - mæting: 08:20
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs - mæting: 08:20
Frá verkefnastjóra íbúatengsla, dags. 10. febrúar, lagðar fram niðurstöður kosninga úr Okkar Kópavogur 2020.
Lagt fram.
Gestir
- Sigrún María Kristinsdóttir - mæting: 09:02
Frá Þroskahjálp, dags. 10. febrúar, lagt fram erindi um viðræður við sveitarstjórnir um hugsanlega aðkomu Húsbyggingarsjóðs að uppbyggingu á húsnæði fyrir fatlað fólk.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs og fjármálastjóra.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 49 liðum.
Lagt fram.