Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2995. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Fundurinn var haldinn í fjarfundi.

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Húsnæðismál Hörðuvallaskóla 2020

Frá sviðsstjórum mennta-, umhverfis- og stjórnsýslusviðs, dags. 27. febrúar, lagt fram erindi um aukið kennslurými Hörðuvallaskóla haustið 2020 þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að ganga til viðræðna um kaup á húsnæði við Ögurhvarf 4b fyrir dansfélagið Hvönn sem nú er til húsa í Kórnum.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum að veita umbeðna heimild.

Ýmis erindi

02

Óskað eftir athugasemdum við tillögur vinnuhóps um endurkoðun á kosningalögum

Frá starfshópi um endurskoðun kosningalaga, dags. 19. mars, lögð fram til umsagnar drög að frumvarpi til kosningalaga.

Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

03

Styrktarsjóður EBÍ 2019. Boð um að senda inn umsókn

Frá EBÍ, dags. 16. mars, lagt fram erindi þar sem aðildarsveitarfélög EBÍ eru hvött til að senda inn umsókn í styrkstarsjóð EBÍ.

Lagt fram.

Ýmis erindi

04

Tillögur að fyrirkomulagi afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila

Frá SSH, dags. 23. mars, lagðar fram tillögur að fyrirkomulagi afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila sem vísað er til efnislegrar afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum.

Bæjarráð samþykkir erindið með 5 atkvæðum.

Ýmis erindi

05

Til umsagnar: Frumvarp til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, 666. mál.

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 21. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um viðbótarstuðning við aldraða (stjórnarfrumvarp).

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

06

Umsókn um stofnframlag vegna kaupa á íbúðum 2020

Frá Brynju hússjóði ÖBÍ, dags. 19. mars, lögð fram umsókn um stofnframlag vegna kaupa á 30 íbúðum í Kópavogi á árinu 2020.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum umsókn um stofnframlag.

Fundargerðir nefnda

07

Íþróttaráð - 101. fundur frá 18.03.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Fundargerð

08

Menntaráð - 59. fundur frá 17.03.2020

Fundargerð í 2 liðum.

Lögð fram.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerð fundar Reykjanesfólkvangs frá 11.03.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

10

Skipulagsráð - 72. fundur frá 23.03.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerð 318. fundar stjórnar Strætó frá13.03.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

12

Velferðarráð - 61. fundur frá 23.03.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.