Til baka í fundargerðir
Húsnæðismál Hörðuvallaskóla 2020
Málsnúmer: 2002675
Ferill máls
01
Menntaráð - 60. fundur
Staða húsnæðismála kynnt.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2996. fundur
Frá bæjarstjóra, lagt fram til samþykktar kauptilboð í Ögurhvarf 4b fyrir dansfélagið Hvönn sem nú er til húsa í Kórnum til að rýma fyrir auknu kennslurými í Hörðuvallaskóla.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagt kauptilboð með fyrirvara um að vsk kvöðin sé innifalin í tilboðinu.
03
Bæjarráð - 2995. fundur
Frá sviðsstjórum mennta-, umhverfis- og stjórnsýslusviðs, dags. 27. febrúar, lagt fram erindi um aukið kennslurými Hörðuvallaskóla haustið 2020 þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að ganga til viðræðna um kaup á húsnæði við Ögurhvarf 4b fyrir dansfélagið Hvönn sem nú er til húsa í Kórnum.
Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum að veita umbeðna heimild.