Bæjarráð - 3153. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaðurBoðaði forföllSigrún Hulda Jónsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Hjördís Ýr Johnson - formaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ásdís Kristjánsdóttir
Starfsmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Sviðsstjóri umhverfissviðs fer yfir stofninn.
Kynnt.
Lögð fram drög að stefnu fjármálasviðs til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð ákveður að fresta málinu.
Lögð fram drög að mannauðsstefnu Kópavogsbæjar til samþykktar í bæjarráði og bæjarstjórn.
Bæjarráð ákveður að fresta málinu.
Theodóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:22
Frá menntasviði, dags. 11. nóvember 2023, lögð fram greinargerð og tillaga varðandi rekstur frístundabíls.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar íþróttaráðs.
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 20.11.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja útboð á umferðarljósabúnaði vegna Fífuhammsvegar og Kársnesbrautar. Bæjarráð frestaði erindinu 23.11.2023.
Frestað.
06
Funalind 2 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 14. nóvember, lögð fram að nýju tillaga að afgreiðslu á umsókn Leikfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts sem frestað var á fundi bæjarráðs 9. nóvember sl.
Bæjarráð frestar erindinu á fundi sínum 23.11.2023.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að hafna umsókn Leikfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts með vísan í minnisblað lögfræðideildar, dags. 14.11.2023.
Frá lögfræðideild, dags. 27.11.2023, lögð fram tillaga að afgreiðslu styrks til greiðslu fasteignaskatts.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum umsóknina í samræmi við umsögn lögfræðideildar.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 22.11.2023, lagt fram minnisblað með uppfærðum forsendum fjárhagsáætlana í kjölfar nýrrar þjóðhagsspár Hagstofu sem kom út sl. föstudag (17.nóvember 2023).
Lagt fram.
09
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, 497. mál
Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991 (reglugerðarheimildir). 497. mál.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
10
Til umsagnar húsnæðisstefna fyrir árin 2024-2028 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028, 509. mál
Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 509. mál, húsnæðisstefna fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 73. mál Sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 402. mál. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Andri Steinn Hilmarsson vék af fundi kl. 11:22
Fundargerð í þremur liðum.
Bæjarráð vísar afgreiðslu byggingarfulltrúa til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
15.4 - 23111597 - Lengri opnun á kaffistofu Samhjálpar
Lögð fram tillaga velferðarsviðs dags. 23.11.2023, um þátttöku í lengri opnun kaffistofu Samhjálpar, ásamt tilgreindu fylgiskjali.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti þátttöku Kópavogsbæjar í lengri opnun á kaffistofu Samhjálpar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.5 - 23111596 - Þjónustusamningur um rekstur áfangaheimilis
Lögð fram til kynningar drög að endurnýjuðum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurnýjun samnings um rekstur áfangaheimilis við Samhjálp og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt fram.
16.1 - 2210956 - Jafnréttisáætlun Kópavogs 2023-2026
Fara yfir niðurstöður íbúasamráðs.
Lokadrög jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs samþykkt og vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að vísa Jafnrétti- og mannréttindaáætlun Kópavogs 2023-2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 72 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 54 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 114. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 16.11.2023.
Lagt fram.
20
Fundargerð 121. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 17.11.2023
Fundargerð 121. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.
21
Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 27.11.2023
Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 27.11.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 254. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023.
Lagt fram.
23
Fundargerð 46. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 11.11.2023
Fundargerð 46. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 11.11.2023.
Lagt fram.