Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1062. fundur

í bæjarstjórnarsal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Björnsdóttir - forseti
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
  • Aðalsteinn Jónsson - 1. varaforseti
  • Rannveig H Ásgeirsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
  • Hafsteinn Karlsson - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Í upphafi fundar minntist forseti Magnúsar Bjarnfreðssonar, sem lést þann 30. ágúst sl. Magnús sat í bæjarstjórn Kópavogs árin 1974 - 1978.

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð, 6. september.

2652. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 16.02. Fundi var fram haldið kl. 16.08. Til máls tóku Guðríður Arnardóttir um liði 46 og 29, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um lið 46, Ólafur Þór Gunnarsson um lið 46, Hjálmar Hjálmarsson um liði 7 og 46, Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 44, Aðalsteinn Jónsson um lið 7, Hjálmar Hjálmarsson um lið 7, Guðríður Arnardóttir um liði 46 og 7 og Ómar Stefánsson um liði 5, 7, 13 og 29.

02

Leikskóli Rjúpnahæð. Forval.

Tillaga matsnefndar sem er skipuð þremur fulltrúum úr leikskólanefnd, leikskólafulltrúum og sviðsstjóra umhverfissviðs er að gengið verði til samninga við Eykt sem hafi verið með lægsta verðið. $line$Bæjarráð vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við Eykt um byggingu leikskóla í Rjúpnahæð með átta samhljóða atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

03

Samningur um uppbyggingu íbúðabyggðar á norðanverðu Kársnesi. Björgun ehf., Gylfi og Gunnar ehf. og Kópavogsbær.

Frestað á fundi bæjarráðs, 23. ágúst sl. og málinu vísað til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóra, þar sem einnig var óskað eftir nánari lýsingu á áformum um uppbyggingu á svæðinu. $line$Bæjarráð vísaði erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir beiðni um heimild til að veðsetja lóðir á norðanverðu Kársnesi með sex samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 4. september.

55. fundur.

Til máls tók Ólafur Þór Gunnarsson um lið 4. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.

05

Dalaþing 4, umsókn um byggingarleyfi.

Lögð fram tillaga byggingarfulltrúa, dags. 4. september, um að samþykkja dagsektir kr. 30.000 pr. dag frá og með samþykkt bæjarstjórnar þar til framkvæmdaáætlun hefur verið lögð fram um hvenær fyrirhugað er að hefja og ljúka framkvæmdum við breytingu og lækkun þaksins að Þalaþingi 4 í samræmi við teikningu sem samþykkt var í byggingarnefnd Kópavogs 8. janúar 2009.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu byggingarfulltrúa um dagsektir einróma.

06

Félagsmálaráð, 4. september.

1336. fundur.

Lagt fram.

07

Framkvæmdaráð, 5. september.

37. fundur.

Lagt fram.

08

Þorrasalir 17. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Frá framkvæmdaráði, dags. 5. september, þar sem lagt er til að lóðinni Þorrasalir 17, verði úthlutað til Mannverk ráðgjöf ehf. kt. 600312-1030. Bæjarráð samþykkti tillögu framkvæmdaráðs á fundi sínum þann 6. september sl.

Bæjarstjórn samþykkir að úhluta Mannverki ráðgjöf ehf. lóðinni Þorrasölum 17 með tíu samhljóða atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

09

Austurkór 2. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði.

Frá framvkæmdaráði, dags. 5. september, þar sem lagt er til við bæjarráð að lóðinni Austurkór 2, verði úthlutað til Trémót byggingaverktaka ehf. kt. 450209-1200. $line$Bæjarráð samþykkti tillögu framkvæmdaráðs á fundi sínum þann 6. september sl.

Bæjarstjórn samþykkir að úthluta Trémót byggingarverktaka ehf. lóðinni Austurkór 2 með tíu samhljóða atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

10

Hafnarstjórn, 3. september.

84. fundur.

Lagt fram.

11

Leikskólanefnd, 4. september.

30. fundur.

Lagt fram.

12

Fundargerðir stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 27. ágúst.

326. fundur.

Lagt fram.

13

Skólanefnd, 27. ágúst.

46. fundur.

Lagt fram.

14

Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, 27. ágúst.

173. fundur.

Lagt fram.

15

Umhverfis- og samgöngunefnd, 23. ágúst.

23. fundur.

Lagt fram.

16

Umhverfis- og samgöngunefnd, 27. ágúst.

24. fundur.

Lagt fram.

17

Umhverfis- og samgöngunefnd, 3. september.

25. fundur.

Lagt fram.

18

Kosningar í skólanefnd 2012 - 2014

Til máls tók Hjálmar Hjálmarsson um stjórn fundarins.

Bragi Þór Thoroddsen kjörinn aðalmaður í skólanefnd í stað Rannveigar Ásgeirsdóttur.

19

Kosningar í atvinnu- og þróunarráð 2012-2014

Hreiðar Oddsson kjörinn varamaður í atvinnu- og þróunarráðs í stað Héðins Sveinbjörnssonar.

20

Kosningar í barnaverndarnefnd

Andrés Pétursson kjörinn aðalmaður í barnaverndarnefnd í stað Braga Þórs Thoroddsen.Jón Kristinn Snæhólm kjörinn aðalmaður í barnaverndarnefnd í stað Jóhönnu Thorsteinsson.

21

Kosningar í íþróttaráð

Andrés Gunnlaugsson kjörinn varamaður í íþróttaráð í stað Ragnheiðar K. Guðmundsdóttur.

22

Kosningar í jafnréttis- og mannréttindaráð

Ragnheiður K. Guðmundsdóttir kjörin aðalmaður í jafnréttis- og mannréttindaráð í stað Jóhönnu Heiðdal.