Leikskóli Rjúpnahæð. Forval.
Málsnúmer: 1203269
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1062. fundur
Tillaga matsnefndar sem er skipuð þremur fulltrúum úr leikskólanefnd, leikskólafulltrúum og sviðsstjóra umhverfissviðs er að gengið verði til samninga við Eykt sem hafi verið með lægsta verðið. $line$Bæjarráð vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við Eykt um byggingu leikskóla í Rjúpnahæð með átta samhljóða atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.
02
Bæjarráð - 2652. fundur
Tillaga matsnefndar sem er skipuð þremur fulltrúum úr leikskólanefnd, leikskólafulltrúum og sviðsstjóra umhverfissviðs er að gengið verði til samninga við Eykt sem hafi verið með lægsta verðið.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Deildarstjóri leikskóladeildar sat fundinn undir þessum lið.
03
Framkvæmdaráð - 37. fundur
Frá verkefnastjóra umhverfissviðs.
Tillaga matsnefndar sem er skipuð þremur fulltrúum úr leikskólanefnd, leikskólafulltrúum og sviðsstjóra umhverfissviðs er að gengið verði til samninga við Eykt sem hafi verið með lægsta verðið. Tillagan er samþykkt með tveimur atkvæðum. Guðríður Arnardóttir sat hjá við atkvæðagreiðslu.Guðríður Arnardóttir bókar: Undirrituð situr hjá þar sem ekki er nægjanlega ljóst hvort tilboð Sérverks eða Eyktar sé raunverulegra lægra. Matsnefnd fór einungis yfir hönnun og teikningar og mat báða þessa aðila jafn hátt. Undirrituð hefði talið eðlilegt að endurskoða matið m.t.t. þessara tveggja aðila þar sem Sérverk er með lægra fermetraverð og stærri byggingu.Gunnar I. Birgisson bókar: Hér hefur verið farið í einu og öllu samkvæmt reglum sem gilda um alútboð. Greinilegt er að Guðríður hefur ekki kynnt sér þær reglur. Guðríður Arnardóttir bókar: Ég hef kynnt mér þær mjög vel.Gunnar I. Birgisson bókar: Greinilega ekki.
04
Leikskólanefnd - 30. fundur
Kynntur ferill við umsagnir um tilboð í hönnun og byggingu leikskóla við Austurkór.
05
Bæjarráð - 2643. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29/5, óskað eftir heimild til að bjóða eftirtöldum aðilum þátttöku í alútboði á byggingu leikskóla við Austurkór 1:$line$Jáverk ehf., Ístak hf., ÍAV hf., Eykt ehf., Sérverk ehf. og S.Þ. verktakar ehf.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild.
06
Framkvæmdaráð - 31. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.
Framkvæmdaráð ákveður að velja sex aðila í alútboð í stað fyrir fimm og sviðsstjóra umhverfissviðs falið að senda bréf þess efnis til umsækjenda í forvali.
07
Framkvæmdaráð - 30. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Listi yfir þáttakendur í fovali.
Lagt fram.
08
Bæjarráð - 2635. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, óskað heimildar til forvals vegna útboðs á byggingu leikskóla á Rjúpnahæð, samþykkt í framkvæmdaráði 21/3, sbr. lið 14 í fundargerð.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
09
Framkvæmdaráð - 26. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Óskað eftir heimild til forvals vegna útboðs á byggingu leikskóla á Rjúpnahæð.
Framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti að fela sviðsstjóra að vinna áfram að gerð útboðsgagna og auglýsa forval.