Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1175. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ása Richardsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Pétur Hrafn Sigurðsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2017

Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2017. Bæjarráð samþykkti ársreikning Kópavogsbæjar fyrir árið 2017 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins skv. 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2017 er undirritaður og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Kópavogsbæjar, A og B hluta. Greindi hann frá rekstrarniðurstöðum og helstu frávikum. Þannig skýrði hann út sjóðsstreymi og niðurstöður efnahagsreiknings. Einnig var lagður fram ársreikningur LSK til kynningar. Þá lagði bæjarstjóri til að ársreikningi Kópavogsbæjar yrði vísað til seinni umræðu. Bæjarstjórn vísar afgreiðslu ársreiknings Kópavogsbæjar fyrir árið 2017 ásamt ársreikningum stofnana bæjarins til seinni umræðu með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2910. fundur frá 12.04.2018

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.


2.2 - 1804182 - Markavegur 7, umsókn um hesthúsalóð.

Frá bæjarlögmanni, dags. 9. apríl, lagt fram erindi er varðar umsókn um hesthúsalóðina við Markaveg 7.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.


03

Bæjarráð - 2911. fundur frá 18.04.2018

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.


3.2 - 1804213 - Tónahvarf 4, umsóknir um lóð.

Frá lögfræðideild, dags. 16. apríl, lagt fram erindi er varðar lóðaúthlutun á lóðinni Tónahvarfi 4. Átta umsækjendur sóttu um lóðina og lagt er til dregið verði milli þeirra tveggja umsækjenda sem koma til greina við úthlutun lóðarinnar, en það eru Litluvellir efh., kt. 570513-0520 og Þarfaþing ehf., kt. 450193-3059.

Fulltrúi Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu var boðaður til fundarins til að sjá um útdrátt á milli umsækjenda. Útdráttur var færður í gerðarbók sýslumanns. Dregin var umsókn Litluvalla ehf., kt. 570513-0520. Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn Litluvalla ehf. um lóðina Tónahvarf 4 með vísan til niðurstöðu útdráttar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum umsókn Litluvalla ehf. um lóðina Tónahvarf 4 með vísan til niðurstöðu útdráttar.



3.5 - 18031087 - Vesturvör 40-42 og 44-48 - samkomulag um uppbyggingu á svæðinu

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að samkomulagi um lóðirnar Vesturvör 40-48. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum 22. mars sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar með fimm atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir framlagt samkomulag um lóðirnar Vesturvör 40-48 með 9 atkvæðum gegn einu atkvæði Kristínar Sævarsdóttur og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur.


04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 238. fundur frá 22.03.2018

Fundargerð í 13 liðum.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

05

Forsætisnefnd - 114. fundur frá 18.04.2018

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

06

Leikskólanefnd - 93. fundur frá 12.04.2018

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

07

Lista- og menningarráð - 88. fundur frá 12.04.2018

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.


7.2 - 1804186 - Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Kópavogs. Reglur um tilnefningu heiðurslistamanns Kópavogs

Drög að nýjum reglum um bæjarlistamann Kópavogs og heiðurslistamann Kópavogs

Lista- og menningarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni menningarmála að ganga frá reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Kópavogs með 11 atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir reglur um tilnefningu heiðurslistamanns Kópavogs með 11 atkvæðum.


08

Velferðarráð - 27. fundur frá 09.04.2018

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

09

4. fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 21. mars 2018

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð 855. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.12.2017

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 856. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26.02.2018

Fundargerð í 32 liðum.

Lagt fram.

12

Fundargerð 857. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23.02.2018

Fundargerð í 22 liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 858. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23.03.2018

Fundargerð í 30 liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 388. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 13.04.2018

Fundargerð í 8 liðum.

Jafnframt eru lögð fram þrjú fylgiskjöl : "Bréf Umhverfisstofnunar vegna starfsleyfis fyrir urðun", "Viljayfirlýsing undirrituð" og "SOS samningur - framlenging".

Lagt fram.

15

Fundargerð 456. fundar stjórnar SSH frá 09.04.2018

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.