Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1179. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Áður en gengið var til dagskrár lagði Theódóra Þorsteinsdóttir fram eftirfarandi bókun:
"Ég geri verulegar athugasemdir við boðun þessa bæjarstjórnarfundar út frá umboði forsætisnefndar til að ákveða nýjan fundartíma. Stjórnsýslan hér er óskýr og það veldur mér vonbrigðum að nýsamþykktur tími bæjarstjórnarfundar hafi verið hundsaður með þessum hætti. Samkvæmt 11. gr. bæjarmálasamþykktar þá ber bæjarstjórn að taka ákvörðun í upphaf kjörtímabils um fundartíma. Á síðasta bæjarstjórnarfundi var einmitt upphaf kjörtímabils og bæjarstjórn ákvað á þeim fundi að bæjarstjórnarfundirnir ættu að vera kl. 16 að Hábraut 2. Það var ekkert orðalag "að jafnaði" þar og ekkert svigrúm til neins. Þetta var ákvörðun bæjarstjórnar. Í sveitarstjórnarlögum er tiltekið að það er bæjarstjórn sem ákveður valdsvið nefnda og ráða og hafi nefnd ekki verið falið að ákveða eitthvað þá teljast ályktanir hennar eingöngu tillögur, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir. Því geri ég miklar athugasemdir um gildi þessarar ákvörðunar um að færa tíma.
Theódóra Þorsteinsdóttir"

Dagskrá fundar

01

Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Kópavogs 2018-2022

Frá bæjarstjóra, lagður fram málefnasamningur um meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi.

Lagt fram.

Fulltrúar Samfylkingar lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Málefnasamningur Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem liggur hér frammi er frekar gamaldags samningur gerður af gamaldags og íhaldssömum flokkum. Mörg atriða sem tiltekin eru í samningnum eru þegar komin af stað, önnur eru á valdi ríkisins að framkvæma. Fátt nýtt, frumlegt eða snjallt er að finna í málefnasamningnum.

Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir"

Fulltrúar BF Viðreisnar lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Málefnasamningurinn er listi yfir ágætis verkefni. Flest verkefni eru framhald af þeirri vinnu sem þegar var verið að vinna í á síðasta kjörtímabili og mörg hver búið að samþykkja og komin í ferli. Nokkur eru háð vilja og valdi ríkisins. Áhyggjuefni er skortur á stefnumörkun og framtíðarsýn í málaflokkunum.

Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Þorvarðarson"

Hlé var gert á fundi kl. 14:40. Fundi var fram haldið kl. 14:43.

Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Málefnasamningurinn er verkefnalisti kjörtímabilsins sem allir bæjarfulltrúar eiga að geta átt gott samstarf um.

Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Geirda, Jón Finnbogason, Birkir Jón Jónsson"

02

Verkefni nýkjörinna fulltrúa við upphaf kjörtímabils. Dagskrármál frá Theódóru Þorsteinsdóttur.

Hlé var gert á fundi kl. 14:45. Fundi var fram haldið kl. 15:25.

Yfirferð á verkefnum nýkjörinna fulltrúa við upphaf kjörtímabils.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2918. fundur frá 14.06.2018

Fundargerð í 13. liðum.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 2919. fundur frá 21.06.2018

Fundargerð í 8. liðum.

Lagt fram.

05

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 242. fundur frá 25.05.2018

Fundargerð í 15. liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

06

Forsætisnefnd - 118. fundur frá 21.06.2018

Fundargerð í 2. liðum.

Lagt fram.


6.2 - 1806763 - Starfskjör bæjarstjóra 2018

Frá forseta, samningur við bæjarstjóra um starfskjör bæjarstjóra. Forsætisnefnd frestaði afgreiðslu á síðasta fundi.

Forsætisnefnd vísar málinu til bæjarstjórnar.

Tillaga frá Ármanni Kr. Ólafssyni:
"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að lækka laun kjörinna fulltrúa og laun bæjarstjóra um 15% við upphaf nýs kjörtímabils.
Greinargerð:
Í kjölfar úrskurðar kjararáðs um kjör þingmanna samþykkti bæjarstjórn Kópavogs á nýliðnu kjörtímabili að hækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra hjá Kópavogsbæ. Hækkunin tók þó ekki mið af úrskurði kjararáðs heldur var hækkunin lægri en þar var kveðið á um og tók þess í stað mið af þróun launavísitölu á vinnumarkaði. Engu að síður hefur komið fram gagnrýni á launaþróun þessara aðila sem og kjör annarra kjörinna fulltrúa í landinu m.a. af hálfu forystufólks á vinnumarkaði. Því er lagt til að launin lækki í upphafi kjörtímabils um 15% frá því sem þau eru nú."

Margrét Friðriksdóttir lagði til að tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar verði vísað til úrvinnslu forsætisnefndar. Var það samþykkt með 11 atkvæðum.

07

Menntaráð - 27. fundur frá 05.06.2018

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram.

08

Skipulagsráð - 30. fundur frá 18.06.2018

Fundargerð í 13. liðum.

Lagt fram.


8.10 - 1802571 - Vogatunga 22-34. Sameignalóð botnlangans.

Lagt fram að nýju erindi húsfélagsins í Vogatungu 22-34, dags. 20. febrúar 2018, þar sem óskað er eftir breyttum mörkum sameignarlóðar húsfélagsins við endurnýjun lóðaleigusamnings frá 1967. Á fundi skipulagsráðs 5. mars 2018 var erindinu frestað og vísað til umsagnar umhverfissviðs Kópavogsbæjar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar Kópavogsbæjar dags. 15. júní 2018.

Skipulagsráð hafnar erindinu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum. Theódóra Þorsteinsdóttir greiddi ekki atkvæði.



8.11 - 1806643 - Tónahvarf 7. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga ASK akritekta fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 7 við Tónahvarf. Í breytingunni felst að byggt er út úr gildandi byggingarreit í norður og vestur, fyrirhuguð bygging verði á einni hæða án kjallara, nýtingarhlutfall lóðarinnar lækkar úr 0,6 í 0,4 og fyrirkomulagi bílastæða á lóð er breytt. Samþykki lóðarhafa Tónahvarfs 5 dags. 15. júní 2018 liggur fyrir. Uppdráttur í mkv. 1:500 ásmt skýringarmyndum dags. 6. júní 2018.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.



8.7 - 1804088 - Fífuhvammur 21. Endurbætur á sólstofu.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Ragnheiðar Sverrisdóttur innanhússarkitekts fyrir hönd lóðarhafa Fífuhvamms 21 þar sem óskað er eftir að endurgera sólstofu ofan á bílskúr alls 28,7 m2. Áætlað er að sólstofna hækki um 20 sm miðað við núverandi þakhæð. Á fundi skipulagsráðs 16. apríl 2018 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Fífuhvamms 19, 23 og Víðihvamms 12, 14 og 16. Athugasemdafresti lauk 18. júní 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.


09

Fundargerð 173. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 15.06.2018

Fundargerð í 8. liðum.

Lagt fram.

10

Umhverfis- og samgöngunefnd - 99. fundur frá 07.06.2018

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.


10.1 - 18051067 - Hjólabrettaskál í Kópavogi

Lagt fram erindi Brettafélag Kópavogs varðandi hjólabrettaskál í Kópavogi dags. 26. mars 2018.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir á framlagðar tillögur og vísar erindinu til Umhverfissviðs til afgreiðslu. Hreiðar Oddsson bókar að hann fagnar því að frumkvæði íbúa séu nýtt og vonar að hjólabrettaskál rísi í Kópavogi von bráðar. Kostnaðarliðum erindisins vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar og gerðar næstu fjárhagsáætlunar.
Umhverfisfulltrúa falið að skoða mögulegar staðsetningar.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2019 með 10 samhljóða atkvæðum. Pétur Hrafn Sigurðsson greiddi ekki atkvæði.



10.2 - 18051314 - Umhverfisviðurkenningar 2018

Lögð fram tillaga að umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2018.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögur að Umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2018.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögur að Umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2018.


11

Digranesvegur 12. Kynning á byggingarleyfi.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Móheiðar HH. Obel, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttri notkun húsnæðis við Digranesvegi 12. Í breytingunni felst að atvinnuhúsnæði er beytt í 45 m2 íbúð. Uppdrætti í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 22. ágúst 2017. Á fundi skipulagsráðs 16. október 2017 var málinu hafnað. Lóðarhafi óskaði eftir endurupptöku byggingarleyfis vegna synjunar með bréfi, dags. 20. desember 2017. Bæjarráð samþykkti að endurupptaka málið og vísaði því til skipulagsráðs. Á fundi skipulagsráðs 5. mars 2018 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Digranesvegar 7, 8, 10, 12, 14, 16 og 16a, Vogatungu 22, 24, 26, 28, 30, 32 og 34, Vallartröð 1 og Neðstutröð 2. Athugasemdafresti lauk 7. maí 2018. Athugasemdir bárust. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 29. maí 2018.

Skipulagsráð hafnaði tillögunni og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Á fundi bæjarstjórnar þann 12. júní sl. lagði Theódóra Þorsteinsdóttir fram eftirfarandi afgreiðslutillögu ásamt bókun:

"Ég óska eftir því að málinu verði frestað og óska ég eftir minnisblaði frá bæjarlögmanni um lögmæti þessarar afgreiðslu.

Bókun:

Þar til deiliskipulag svæðisins liggur fyrir, þá ræðst landnotkun af ákvæðum aðalskipulags Kópavogs. Samkvæmt aðalskipulagi er Digranesvegur 12 íbúðarsvæði, "nokkuð fastmótuð byggð" og að "um sé að ræða þéttustu byggð Kópavogs með mjög blönduðum húsagerðum, þó mest fjölbýli". Breyting á notkun húsnæðisins við Digranesveg 12 úr skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði telst því ekki í andstöðu við aðalskipulag, miklu frekar þá samræmist umrædd ósk um breytingu algjörlega gildandi aðalskipulagi. Undirritaðri þykir ómálefnalegt að hafna breytingum á notkun hússins við Digranesveg 12.

Theódóra Þorsteinsdóttir"

Bæjarstjórn samþykkti með 11 atkvæðum afgreiðslutillöguna og frestaði málinu.

Lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 19. júní.

Bæjarstjórn hafnar afgreiðslu skipulagsráðs með sjö atkvæðum þeirra Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur, Einars Þorvarðarsonar, Péturs Hrafns Sigurðssonar, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur en Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Geirdal, Birkir Jón Jónsson og Jón Finnbogason greiddu atkvæði með afgreiðslu skipulagsráðs.um að hafna tillögunni.

Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur, Einars Þorvarðarsonar, Péturs Hrafns Sigurðssonar, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur tillögu að breyttri notkun húsnæðisins við Digranesveg 12. Atkvæði gegn tillögunni greiddu Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Geirdal, Birkir Jón Jónsson og Jón Finnbogason.

12

Kosningar í almannavarnanefnd höfuðb.sv. 2018-2022

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Ármann Kr. Ólafsson

Birkir Jón Jónsson

Varamenn:

Af A-lista:

Margrét Friðriksdóttir

Einar Þorvarðarson

13

Kosningar í barnaverndarnefnd 2018-2022

Kosning fimm varamanna í barnaverndarnefnd.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Karen E. Halldórsdóttir

Bragi Michaelsson

Guðrún Viggósdóttir

Af B-lista:

Magnús Norðdahl

Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir

14

Kosningar í Brunabótafélag Íslands 2018-2022

Kosning varamanns í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands.

Kosningu var frestað.

15

Kosningar í forsætisnefnd 2018-2022

Kosning þriggja varamanna í forsætisnefnd.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Karen Halldórsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Af B-lista:

Bergljót Kristinsdóttir

16

Kosningar í hafnarstjórn 2018-2022

Kosning fimm varamanna í hafnarstjórn.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Helga Guðný Sigurðardóttir

Pétur Halldórsson

Magnús Guðjónsson

Af B-lista:

Elvar Páll Sigurðsson

Af C-lista:

Elvar Bjarki Helgason

17

Kosningar í heilbrigðisnefnd 2018-2022

Kosning tveggja varamanna í heilbrigðisnefnd.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Kristinn Þór Ingvason

Af B-lista:

Steingrímur Steingrímsson

18

Kosningar í íþróttaráð 2018-2022

Kosning fimm varamanna í íþróttaráð.

Signý Skúladóttir kjörin aðalmaður af A-lista í stað Höllu Karí Hjaltested.

Kosningu sem varamenn hlutu:

Af A-lista:

Sunna Svanhvít Söebeck

Lárus Axel Sigurjónsson

Hjörtur Sveinsson

Af B-lista:

Hlín Bjarnadóttir

Sigvaldi Einarsson

Hákon Helgi Leifsson kjörinn varaáheyrnarfulltrúi.

19

Kosningar í jafnréttis- og mannréttindaráð 2018-2022

Kosning fimm varamanna í jafnréttis- og mannréttindaráð.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Ólöf Pálína Úlfarsdóttir

Þorvaldur Sigmarsson

Karen Halldórsdóttir

Af B-lista:

Margrét Ágústsdóttir

Eva Sjöfn Helgadóttir

Róbert Gíslason kjörinn varaáheyrnarfulltrúi.

20

Kosningar í leikskólanefnd 2018-2022

Kosning fimm varamanna í leikskólanefnd.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Kristbjörg Þórisdóttir

Margrét Friðriksdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Af B-lista:

Vallý Helgadóttir

Eva Sjöfn Helgadóttir

Ingibjörg A. Guðmundsdóttir kjörin varaáheyrnarfulltrúi.

21

Kosningar í lista- og menningarráð 2018-2022

Kosning fimm varamanna í lista- og menningarráð.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Björg Baldursdóttir

Margrét Friðriksdóttir

Örn Thorstensen

Af B-lista:

Þóra Marteinsdóttir

Bergþór Skúlason

Hákon Helgi Leifsson kjörinn varaáheyrnarfulltrúi.

22

Kosningar í samstarfsnefnd um rekstur skíðasvæða hbsv. 2018-2022

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í samstarfsnefnd um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Halla Karí Hjaltested kjörin aðalmaður og Guðmundur G. Geirdal varamaður hennar.

23

Kosningar fulltrúa á landsþing Sambands ísl. sveitarfél. 2018-2022

Kosning sjö fulltrúa á Landsþing Sambandsins og jafnmargra til vara.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Margrét Friðriksdóttir

Karen E. Halldórsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Birkir Jón Jónsson

Af B-lista:

Pétur Hrafn Sigurðsson

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Varamenn:

Guðmundur G. Geirdal

Bergljót Kristinsdóttir

Einar Þorvarðarson

Hákon Helgi Leifsson

24

Kosningar í skólanefnd MK 2018-2022

Tilnefning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi.

Tilnefndir voru:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Guðmundur Birkir Þorkelsson

Af B-lista:

Flosi Eiríksson

Varamenn:

Af A-lista:

Jón Guðlaugur Magnússon

Af B-lista:

Anna María Bjarnadóttir

25

Kosningar í stjórn Markaðsstofu Kópavogs 2018-2022

Tilnefning fjögurra aðalmanna og jafnmargra til vara í stjórn Markaðsstofu Kópavogs.

Tilnefningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Helga Hauksdóttir

Sigurður Sigurbjörnsson

Af B-lista:

Tómas Þór Tómasson

Af C-lista:

Elvar Bjarki Helgason

Varamenn:

Af A-lista:

Halla Karí Hjaltested

Magnús Guðjónsson

Af B-lista:

Skafti Halldórsson

Af C-lista:

Anna María Bjarnadóttir

26

Kosningar í stjórn Reykjanesfólkvangs 2018-2022

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í stjórn Reykjanesfólkvangs.

Andri Steinn Hilmarsson kjörinn aðalmaður og Kristín Hermannsdóttir varamaður hans.

27

Kosningar í stjórn SSH 2018-2022

Kjörnir voru Ármann Kr. Ólafsson sem aðalmaður og Birkir Jón Jónsson sem varamaður hans.

28

Kosningar í stjórn Slökkviliðs hbsv. 2018-2022

Kjörnir voru Ármann Kr. Ólafsson sem aðalmaður og Birkir Jón Jónsson sem varamaður hans.

29

Kosningar í stjórn Sorpu bs. 2018-2022

Hjördís Ýr Johnson kjörin varamaður í stjórn Sorpu.

30

Kosningar í stjórn Strætó bs. 2018-2022

Kosning varamanns í stjórn Strætó bs.

Margrét Friðriksdóttir kjörin varamaður í stjórn Strætó.

31

Kosningar í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs 2018-2022

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Ísól Fanney Ómarsdóttir

Af B-lista:

Þóra Marteinsdóttir

Varamenn:

Af A-lista:

Margrét Friðriksdóttir

Af B-lista:

Ása Richardsdóttir

32

Kosningar í stjórn Tónlistarskólans Tónsala 2018-2022

Kosning eins aðalmanns og eins til vara í stjórn tónlistarskólans Tónsala.

Kosningu hlutu:

Aðalmaður:

Af A-lista:

Margrét Friðriksdóttir

Af B-lista:

Pétur Steinn Guðmundsson

Varamaður:

Af A-lista:

Guðmundur Geirdal

Af B-lista:

Ragnheiður Bóasdóttir

33

Kosningar í svæðisskipulagsnefnd hbsv. 2018-2022

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Helga Hauksdóttir

Af B-lista:

Bergljót Kristinsdóttir

Varamenn:

Af A-lista:

Hjördís Ýr Johnson

Af B-lista:

Pétur Hrafn Sigurðsson

34

Kosningar í yfirkjörstjórn v. sveitarstjórnarkosninga, alþingiskosninga og forsetakosninga 2018-2022

Kosning þriggja aðalmanna og jafnmargra til vara í yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga, alþingiskosninga og forsetakosninga.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Ingibjörg Ingvadóttir

Snorri Tómasson

Af B-lista:

Pétur Steinn Guðmundsson

Varamenn:

Af A-lista:

Jón Guðlaugur Magnússon

Helgi Magnússon

Af B-lista:

Una Björg Einarsdóttir

35

Kosningar í hverfakjörstjórnir 2018-2022

Kosning þiggja manna og jafnmargra til vara í hverfiskjörstjórn í Smáranum.

Kosning þriggja mannna og jafnmargra til vara í hverfiskjörstjórn í Kórnum.

Kosningu var frestað.

36

Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2018-2022

Kosning fimm varamanna í umhverfis- og samgöngunefnd.

Sigurður Sigurbjörnsson kjörinn aðalmaður af A-lista í stað Signýjar Skúladóttir.

Kosningu sem varamenn hlutu:

Af A-lista:

Guðjón Ingi Guðmundsson

Hjördís Ýr Johnson

Guðmundur G. Geirdal

Af B-lista:

Margrét Ágústsdóttir

Hákon Helgi Leifsson

Bergljót Kristinsdóttir kjörin varaáheyrnarfulltrúi.

Hlé var gert á fundi kl. 17:25. Fundi var framhaldið kl. 17:30.

Bæjarstjóri lagði til að fundir bæjarstjórnar í júlí og ágúst falli niður. Sumarleyfi bæjarstjórnar hefjist að loknum yfirstandandi fundi og fari bæjarráð með störf bæjarstjórnar í sumarleyfi skv. 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykktar um stjórn Kópavogsbæjar

Tillagan var samþykkt með níu atkvæðum. Theódóra Þorsteinsdóttir og Einar Þorvarðarson greiddu ekki atkvæði.