Bæjarstjórn - 1152. fundur
í bæjarstjórnarsal í Gerðarsafni
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalmaðurBoðaði forföllÓlafur Þór Gunnarsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundargerðir nefnda eru lagðar fram eins og einstök erindi bera með sér. Um þá liði sem sérstaklega þarfnast staðfestingar er bókað sérstaklega.
Fundargerð í 11. liðum.
Lagt fram.
1.4 - 16111052 - Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda
Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl. Bæjarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 10. janúar sl. og vísaði því til bæjarráðs. Málið var tekið fyrir á fundi velferðarráðs þann 23. janúar sl. sem samþykkti fyrir sitt leyti framlagðar breytingar á reglum um sölu félagslegra íbúða.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram breytingartillögu við breytingartillögu á 1. mgr. 2. gr. sem hljóði svo:
"Tekjur heimilismanna mega þó ekki fara meira en 15% yfir efri tekjumörk".
Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir.
Bæjarstjórn hafnar breytingatillögunni með 7 atkvæðum gegn 3 atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur og Margréti Júlíu Rafnsdóttur og hjásetu Birkis Jóns Jónssonar.
Sverrir Óskarsson leggur fram breytingartillögu við breytingartillögu á 1. mgr. 2. gr. sem hljóði svo:
"Tekjur heimilismanna mega þó ekki fara meira en fimmtung yfir efri tekjumörk".
Sverrir Óskarsson
Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna með 8 atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur og Margréti Júlíu Rafnsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögurnar í heild sinni með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 13. liðum.
Lagt fram.
2.1 - 1702222 - Austurkór 22, umsókn um lóð.
Frá bæjarlögmanni, dags. 14. febrúar, lögð fram umsókn um lóðina Austurkór 22 frá Sigurgarði Sverrissyni, kt. 260876-4069 og Rattiya Porn Insorn, kt. 100872-3839. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Sigurgarði Sverrissyni og Rattiya Porn Insorn kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 22 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
2.2 - 1702280 - Akrakór 8, umsókn um lóð.
Frá bæjarlögmanni, dags. 14. febrúar, lögð fram umsókn um lóðina Akrakór 8 frá Jóni Þór Sigurðssyni, kt. 120760-4839. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Jóni Þóri Sigurðssyni kost á byggingarrétti á lóðinni Akrakór 8 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 26. liðum.
Lagt fram.
3.2 - 1702479 - Hlíðarendi 13, umsókn um lóð.
Frá bæjarlögmanni, dags. 21. febrúar, lögð fram beiðni Snæbjörns Sigurðssonar, kt. 210658-5569 og Bjargar Ingvarsdóttur, kt. 170454-6189, um að hesthúsalóðin Hlíðarendi 13, sem var úthlutað til Efstadals 2 ehf., verði skráð persónulega á þau í stað félagsins, en þau eru aðaleigendur Efstadals 2 ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Snæbirni Sigurðssyni og Björgu Ingvarsdóttur kost á byggingarrétti á lóðinni Hlíðarenda 13 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
3.25 - 1702218 - Fundartími bæjarráðs
Ármann Kr. Ólafsson leggur fram tillögu að breyttum fundartíma þannig að bæjarráð hefjist kl. 07:30.
Jafnframt er lagt til að liðurinn "önnur mál" á fundum bæjarráðs innihaldi einungis mál sem tilkynnt hafi verið um fyrir útsent fundarboð bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum og mótatkvæði Arnþórs Sigurðssonar.
Bókun Arnþórs Sigurðsonar vegna fundartíma:
"Það er með öllu óeðlilegt að breyta fundartíma bæjarráðs til hagræðingar fyrir einn bæjarfulltrúa og koma mögulega í veg fyrir að aðrir bæjarfulltrúar geti mætt til fundar í ráðinu. Ef gera á breytingar á föstum fundartímum væri mun heppilegra að leggja fram og kynna slíka tillögu snemma sumars sem tæki þá gildi að hausti svo að bæjarfulltrúar hafi tök á því að skipuleggja sinn tíma yfir veturinn."
Fundarhlé hófst kl. 9.21. Fundur hófst aftur kl. 9.40.
Bókun frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar:
"Við breytingar á nefndakerfi Kópavogs voru af forsætisnefnd nýverið teknar til endurskoðunar fundartímar ráða bæjarins, að bæjarráði undanskildu. Hér er verið að færa fundartíma til samræmis við önnur ráð að því leytinu til að hann er utan hefðbundins vinnutíma.
Ármann Kr. Ólafsson, Hjördís Johnson, Karen E. Halldórsdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir."
Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:
"Bókun fulltrúa VG kemur mér verulega á óvart þar sem tímasetningin var lögð til eftir samráð við Ólaf Þór Gunnarsson oddvita Vinstri grænna sem illu heilli situr ekki fundinn en bókunin er lögð fram af varamanni hans. Einnig var haft samráð við Pétur H. Sigurðsson fyrir fundinn."
Bókun Péturs H. Sigurðssonar:
"Tek undir bókun Arnþórs Sigurðssonar."
Bókun Birkis J. Jónssonar:
"Tek undir bókun Arnþórs Sigurðssonar."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 7 atkvæðum gegn atkvæðum Margrétar Júlíu Rafnsdóttur og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur og Birkis Jóns Jónssonar.
Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8. liðum.
Lagt fram.
Bókun Birkis Jóns Jónssonar:
"Ég tek undir bókun Matthíasar Imsland"
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram
Fundargerð í 24. liðum.
Lagt fram.
8.10 - 1610270 - Grænatunga 3. Kynning á byggingarleyfi.
Frá byggingarfulltrúa:
Lögð fram að nýju tillaga Albínu Thordarson, arkitekts fh. lóðarhafa að 50,4 m2 viðbyggingu auk 26,8 m2 tengibyggingu við Grænutungu 3, samtals 77,2 m2 sbr. uppdrætti í mkv. 1:100 dags. 5. október 2016.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Grænutunngu 1, 5, Digranesvegi 40, 42 og 44. Kynningartíma lauk 28. desember 2016. Athugasemd barst frá lóðarhafa Grænutungu 1. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomna athugasemd. Er umsögnin dags. 15. febrúar 2017.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.13 - 1702353 - Austurkór 157, 159, 161. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram erindi Ríkharðs Oddssonar, byggingartæknifræðings, dags. 25. janúar 2017 fh. Gráhyrnu ehf. lóðarhafa Austurkórs 157, 159 og 161 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að þremur einbýlishúsalóðum er skipt upp í tvær parhúsalóðir. Jafnframt er óskað eftir því að parhúsin verði á einni hæð með innbyggðri bílageymslu og hver eining verði 177 m2 að grunnfleti. Hámarkshæð verði 4,8 m í stað 7,5 m sbr. gildandi skipulagsskilmála og tvö bílastæði á lóð. Uppdrættir í mkv. 1:200 ásamt skýringarmyndum ódags.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.16 - 1609771 - Álfhólsvegur 52. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa um tillögu Páls V. Bjarnasonar dags. 31. ágúst 2016 þar sem óskað er eftir að breyta bílskúr við Álfhólsveg 52 í vinnustofu. Afgreiðslu erindisins var frestað á fundi skipulagsnefndar 19. september 2016 og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Einnig lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 16. febrúar 2017.
Skipulagsráð hafnar framlögðu erindi og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
8.17 - 1702400 - Naustavör 36-42, 44-50 og 52-58. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram erindi Archus arkítekta og Landmark dags. 14. febrúar 2017 fyrir hönd lóðarhafa Naustavarar 36-42, 44-50 og 52-58 (áður 52-74). Í breytingunni felst eftirfarandi:
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Naustavör 36 til 42.
Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 42 í 44 íbúðir. Heildarbyggingarmagn eykst um 295 m2. Hámarshæð húss hækkar um 0.45 metra og hluti byggingarreitar sem skilgreindur er 3 hæðir og kjallari verður 4 hæðir og kjallari. Aðkoma og fjöldi bílastæða breytist og verða 46 stæði á lóð og 44 stæði í kjallara. Að öðru leyti er vísað í gildandi skilmála og deiliskipulagsuppdrátt m.s.br. 14. apríl og í september 2015.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Naustavör 44 til 50.
Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 42 í 44 íbúðir. Heildarbyggingarmagn eykst um 295 m2. Hámarshæð húss hækkar um 0.45 metra og hluti byggingarreitar sem skilgreindur er 3 hæðir og kjallari verður 4 hæðir og kjallari. Aðkoma og fjöldi bílastæða breytist og verða 46 stæði á lóð og 44 stæði í kjallara. Að öðru leyti er vísað í gildandi skilmála og deiliskipulagsuppdrátt m.s.br. 14. apríl og í september 2015.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Naustavör 52 til 58.
Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 42 í 44 íbúðir. Heildarbyggingarmagn eykst um 295 m2. Hámarshæð húss hækkar um 0.45 metra og hluti byggingarreitar sem skilgreindur er 3 hæðir og kjallari verður 4 hæðir og kjallari. Aðkoma og fjöldi bílastæða breytist og verða 46 stæði á lóð og 44 stæði í kjallara. Að öðru leyti er vísað í gildandi skilmála og deiliskipulagsuppdrátt m.s.br. 14. apríl og í september 2015.
Skipulagsráð samþykkir ofangreindar breytingar með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.18 - 1612052 - Þverbrekka 2. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram erindi Birgis Þórissonar fh. húsfélags Þverbrekku 2 dags. 24. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 30 í 32. Húsfélagið hefur í huga að breyta notkun á rými í sameign þannig að til verði tvær litlar íbúðir (ca 40 fm hvor) sem verði útbúnar á jarðhæð í rýmum sem á teikningu voru ætlaðar fyrir gang, kerru- og hjólageymslu, leikherbergi og skrifstofu húsvarðar.
Á fundi skipulagsnefndar 5. desember 2016 var afgreiðslu erindisins frestað og óskað umsagnar byggingarfulltrúa.
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa dags. 11. janúar 2017.
Skipulagsráð samþykkir að unnar verði breytingar á aðalteikningum Þverbrekku 2 þar sem gert er ráð fyrir tveimur íbúðum í sameign hússins sbr. ofangreint erindi húsfélagsins og þær lagðar fyrir byggingarfulltrúa til afgreiðslu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.19 - 1612047 - Skemmuvegur 50. Kynninga á byggingarleyfi.
Frá byggingarfulltrúa.
Lögð fram að nýju tillaga Jóns Davíðs Ásgeirssonar, arkitekts fh. Steinsmiðju S. Helgasonar að nýbyggingu á lóðinni nr. 50 við Skemmuveg. Í tillögunni felst að á lóðinni sem er liðlega 2,000m2 að flatarmáli verði byggt atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum auk kjallara að samanlögðum gólffleti um 2,800 m2. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. í nóvember 2016.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Smiðjuvegi 24, 26, 28, 48, 50, 54, 56, 58, 60, 62, 64,66 og 50A. Kynningartíma lauk 20. febrúar 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Ása Richardsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 8 atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur og Margrétar Júlíu Rafnsdóttur.
8.3 - 1702284 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breyting. Verklýsing. Hágæðakerfi almenningasamgangna á höfuðborgarsvæðinu, Borgarlína.
Með tilvísan í 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er lögð fram tillaga að verkefnalýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2040. Lýsingin, sem dags. er í febrúar 2017 nær til hágæðakerfis almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu - Borgarlínu. Fyrirsjáanleg er mikil fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu á gildistíma svæðisskipulagsins. Ein megin áhersla skipulagsins er að sá vöxtur verði hagkvæmur og að ekki verði gengið á umhverfisgæði þeirra sem á svæðinu búa. Markmiðið er að þessari aukningu verði mætt án þess að bílaumferð aukist í sama hlutfalli og án þess að óbyggt land verði brotið í sama mæli og síðustu áratugi. Nýtt hágæðakerfi almenningssamgangna, Borgarlína, getur gengt þar lykilhlutverki og tengt kjarna allra sveitarfélaganna saman með samgöngu- og þróunarásum. Með Borgarlínu verður til skilvirkur valkostur í samgöngum, þar sem íbúar geta nýtt hágæða almenningssamgöngukerfi og ferðast fljótt um höfuðborgarsvæðið. Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu.
Eftirfarandi fært til bókar:
Skipulagsráð Kópavogs leggur ofurkapp á að fyrsti áfangi Borgarlínuverkefnisins fari um svæðiskjarna höfuðborgarsvæðisins, Smárann. Smárinn er í miðju höfuðborgarsvæðisins og er nú þegar gríðarlega öflugt verslunar- og þjónustusvæði þar sem starfa um 6000 manns með þúsundir heimila allt um kring bæði í Kópavogi, Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfirði. Áhrifasvæði Smárans nær ekki aðeins langt út fyrir bæjarmörk Kópavogs og höfuðborgarsvæðisins heldur nær það til landsins alls. Í Smáranum er nú þegar hafin þétting byggðar í samræmi við stefnu svæðisskipulagsins sem gildir til ársins 2040. Fá svæði á höfuðborgarsvæðinu, ef nokkurt eru jafn vel í sveit sett og Smárinn sem samgöngumiðað þróunarsvæði (sbr. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðins). Smárinn er því lykilsvæði fyrir enn frekari uppbyggingu, blöndun byggðar og miðstöð verslunar og þjónustu í tenglum við Borgarlínuverkefnið.
Það er afstaða skipulagsráðs að ekki sé hægt að fara í fyrsta áfanga Borgarlínunnar nema hún liggi um svæðiskjarna höfuðborgarsvæðisins Smárann með skiptistöð/biðstöð við Smáralind,- stærstu verslunarmiðstöð landsins.
Í Smáralind koma um 20 þúsund gestir á dag þegar best lætur. Fyrirhugaðar eru róttækar breytingar á verslunarmiðstöðinni og enn frekari uppbygging í verslun og þjónustu í tengslum við hana. Nú þegar er hafin vinna við staðsetningu biðstöðvar Borgarlínunnar við Smáralind.
Eitt mikilvægasta stefnumið svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins er að fjölga þeim sem nýta almenningasamgöngur. Til að svo verði þarf Borgarlínan að fara um þar sem fólkið er og verður.
Smárinn er og verður eitt fjölmennasta og þéttasta svæðið sem við eigum og lykilsvæði í því að Borgarlínan verði að veruleika.
Skipulagsráð samþykkir framlagða verklýsingu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.4 - 1702285 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Breyting. Verklýsing. Borgarlína og auknar byggingarheimildir innan áhrifasvæða.
Með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 er lögð fram verkefnalýsing vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Í lýsingunni felst að gert verður ráð fyrir Borgarlínu og auknum byggingarheimildum innan áhrifasvæða hennar í aðalskipulagi bæjarins. Lýsingin sem er samhljóða lýsingum fyrir breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar, Gaðabæjar, Seltjarnarness, Reykjavíkur og Morfellsbæjar er dags. í febrúar 2017. Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu.
Skipulagsráð samþykkir framlagða verklýsingu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.7 - 1611451 - Digranesvegur 1. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Í tillögunni felst að byggt er við húsið til austurs og suðurs 1-3 hæða bygging samtals 1.800 m2. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Í tillögunni er gert ráð fyrir samnýtingu bílastæða. Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynni í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
"Mikilvægt er að fá kostnaðaráætlun sem fylgir verkefninu".
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Sverris Óskarssonar.
8.8 - 1610185 - Auðbrekka 16. Kynning á byggingarleyfi.
Frá byggingarfulltrúa:
Lagt fram að nýju erindi Jóns Davíðs Ásgeirssonar, arkitekts, dags. 2.9.2016, f.h. lóðarhafa vegna breytingu á Auðbrekku 16. Í breytingunni felst að annari hæð hússins verður breytt í tvær íbúðir og settar verði svalir á norðurhlið hússins og pallur með skjólveggi á suðurhlið sbr. uppdrætti dags. 2.9.2016.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Auðbrekku 16, 18, 20, 22, 24, 26, 28, 30 og 32; Löngubrekku 45 og 47. Kynningartíma lauk 12. desember 2016. Athugasemd barst frá Gunnari Árnasyni eiganda 2. hæðar í Auðbrekku 16 sbr. erindi dags. 12. nóvember 2016. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 17. febrúar 2017.
Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
8.9 - 1610189 - Langabrekka 5. Kynning á byggingarleyfi.
Frá byggingarfulltrúa:
Lagt fram að nýju erindi Verkfræðistofu Ívars Haukssonar f.h. lóðarhafa dags. 27.9.2016 þar sem óskað er eftir að byggja bílgeymslu sem verður áföst vesturhlið hússins að Löngubrekku 5 sbr. framlagða uppdrætti í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27.9.2016.
Skipulagsnefnd samþykkti að grenndarkynna framlagða tillögu með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Löngubrekku 3, 7, Álfhólsvegi 59 og 61. Kynningartíma lauk 2. janúar 2017. Athugasemdir bárust frá Jóni Guðmundssyni og Ernu Jónsdóttur, Álfhólsvegi 61 sbr. bréf dags. 21. desember 2016 og Gunnari Haraldssyni fh. húseiganda Löngubrekku 7 sbr. bréf dags. 7. desember 2016. Þá lagt fram erindi Kristjáns Kristjánssonar, Lögnubrekku 5 dags. 2. janúar 2017 og umboð dags. 18. janúar 2017 eiganda Löngubrekku 7, Ástvalda Viðari Benediktssyni og Maríu Kristinsdóttir til handa Gunnari Haraldssyni.
Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir. Umsögnin er dags. 15. febrúar 2017.
Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.
12
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breyting. Verklýsing. Hágæðakerfi almenningasamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlína.
Frá svæðisskipulagsstjóra, dags. 14. febrúar, lögð fram verkefnislýsing vegna skipulagsbreytingu svæðisskipulags Höfuðborgarsvæðis 2040 út af undirbúningi að innleiðingu hágæða almenningassamgangna á höfuðborgarsvæðinu, Borgarlínu. Svæðisskipulagsnefnd samþykkti verkefnislýsinguna og leggur til við aðildarsveitarfélögin að afgreiða hana til kynningar og umsagnar, ásamt því að samþykkja verkefnislýsingu aðalskipulagsbreytinga.
Bæjarstjórn samþykkir erindið með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 10. liðum.
Lagt fram.
13.7 - 0904122 - Gjaldskrá heimaþjónustu
Velferðarráð samþykkti nýja gjaldskrá fyrir sitt leyti.
Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá fyrir heimaþjónustu með 11 atkvæðum.