Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1220. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Fundargerð

01

Bæjarráð - 3012. fundur frá 27.08.2020

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

02

Bæjarráð - 3013. fundur frá 03.09.2020

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.


2.2 - 2008898 - Stofnun hlutafélags - Betri samgöngur ohf.

Frá SSH, dags. 20. ágúst, lagt fram erindi um stofnun hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu þar sem drög að samþykktum, stofnsamningur og hluthafasamkomulag er vísað til afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum.
Kynning á málinu frá SSH.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur að taka þátt í stofnun opinbers hlutafélags og leggi hlutafélaginu til stofnfé í samræmi við framlagt erindi. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að fela bæjarstjóra að undirrita stofnsamning og hluthafasamkomulag fyrir hönd Kópavogsbæjar.

Bókun:
"Markmið samgöngusáttmálans eru góð, uppbygging innviða sem stuðlar að aukinni notkun virkra ferðamáta er eitt mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Það varðar bæði loftslagið, lýðheilsu og lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægt er að útfærsla „sérstakrar fjármögnunar“ í samkomulaginu verði opnari og aðgengilegri en samningaferlið var. Gert er ráð fyrir að þessi hluti fjármögnunarinnar geti verið með ýmsum hætti eftir því hver vilji Alþingis kann að vera, að því gefnu að það samræmist markmiðum samkomulagsins. Mestu máli skiptir að í þeirri útfærslu verði ekki vegið að þeim tekjulægstu í samfélaginu né að friðhelgi einkalífs."
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir



2.7 - 1609996 - Samstarfsvettvangur íþróttafélaga í Kópavogi

Frá íþróttafulltrúa, lagður fram til samþykktar samstarfssamningur við SÍK, Samstarfsvettvang íþróttafélaga í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamninginn með 11 atkvæðum.

Bókun bæjarstjórnar:
"Notast verður við D'Hont reglu við kosningu í stjórn SÍK af hálfu bæjarstjórnar."


Fundargerð

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 297. fundur frá 12.08.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Fundargerð

04

Íþróttaráð - 104. fundur frá 27.08.2020

Fundargerð í 4 liðum

Lagt fram

Fundargerð

05

Forsætisnefnd - 161. fundur frá 03.09.2020

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

06

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 77. fundur frá 20.08.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Fundargerð

07

Leikskólanefnd - 120. fundur frá 20.08.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

08

Lista- og menningarráð - 115. fundur frá 20.08.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

09

Menntaráð - 64. fundur frá 18.08.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10

Fundargerð nr. 500 stjórnarfundar SSH frá 07.08.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11

Fundargerð 326. fundar stjórnar Strætó frá 14.08.2020

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

11

Ungmennaráð - 18. fundur frá 24.08.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12

Umhverfis- og samgöngunefnd - 131. fundur frá 25.08.2020

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

Kosningar

14

Samstarfsvettvangur íþróttafélaga í Kópavogi

Kosning tveggja fulltrúa í stjórn SÍK.

Tillaga er um:

Sverri Kára Karlsson

Einar Örn Þorvarðarson

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.