Bæjarstjórn - 1338. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHákon Gunnarsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Bergur Þorri Benjamínsson - varamaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Kl. 19:01, vék Hjördís Ýr Johnson af fundi og tók Bergur Þorri Benjamínsson sæti í hennar stað.
Dagskrá fundar
Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2025, ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu.
Fundarhlé hófst kl. 18:01, fundi fram haldið kl. 18:25
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2025, ásamt ársreikningum stofnana bæjarins, til seinni umræðu með 11 atkvæðum.
- 1. Kópavogsbær - ársreikningur ársins 2025-fyrri
- 2. Aðalsjóður 31.12.2025-fyrri
- 3. Eignasjóður 31.12.2025-fyrri
- 4. MK-31.12.2025-fyrri
- 5. Þjónustumiðstöð-31.12.2025-fyrri
- 6. Fráveita-31.12.2025-fyrri
- 7. Vatnsveita-31.12.2025-fyrri
- 8. Hafnarsjóður-31.12.2025-fyrri
- 9. Tónlistarhús-31.12.2025-fyrri
- 10. Bílastæðasjóður-31.12.2025-fyrri
- 11. Húsnæðisnefnd-31.12.2025-fyrri
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-31.12.2025-fyrri
- 13. Ársreikningur-M
- 14. Ársreikningur-Vatni-31.12.2025-fyrri
- 15. Deildaryfirlit samstæðu 2025-fyrri
- 16. Málaflokkayfirlit 2025-fyrri
- Leiðrétting frá fyrri útgáfu 16. apríl 2026
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
2.5 - 26041577 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina.
Umræður.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur framlagaðn viðauka nr. 1.
Fundarhlé hófst kl. 11:52, fundi fram haldið kl. 12:16
Bókun:
"Útgjöld að fjárhæð 48 milljónir króna sem lögð eru til í viðaukanum til endurgerðar tennisvalla hefðu átt að vera ljós við fjárhagsáætlunargerð og vera hluti af bindandi fjárhagsáætlun 2026. Hér er lagt til að fjármagna það með því að fresta útgjöldum vegna skóla í Vatnsendahvarfi. Væntanlega þarf að gera ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun 2027. Ekki er í þessum viðauka fullnægt skilyrðum um tilfærslu milli verkefna í fjárfestingaráætlun heldur er um hreina viðbót að ræða. Minnt er á að með tillögu um viðauka skal fylgja minnisblað um tillöguna og hvaða áhrif hún hefur á samþykkta fjárhagsáætlun. Slíkar skýringar fylgja ekki. Ennfremur er minnt á að samkvæmt reglugerð á sveitarstjórn á að setja sérstakar reglur um heimildir vegna tilfærslu á milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar og millifærslu milli deilda. Þetta á jafnframt við um fjárfestingu og tilfærslu milli verkefna. Þrátt fyrir umræður um nauðsyn þessa í bæjarráði hafa engar tillögur um slíkar reglur verið lagðar fyrir af hálfu bæjarstjóra og stjórnsýslunnar."
Helga Jónsdóttir
Bókun:
"Það er ekki verið að fresta útgjöldum vegna skólans sem er í undirbúningi. Forhönnun og samráðsferli er í fullum gangi en ljóst að ekki næst að fjárfesta fyrir alla fjárhæðina í fjárhagsáætlun á þessu ári."
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Bókun:
"Bókun meirihlutans staðfestir að útgjöldum vegna skólans í Vatnsendahvarfi er frestað til fjárhagsáætlunar næsta ár."
Helga Jónsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka með níu atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar og Helgu Jónsdóttur.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
4.1 - 2402380 - Stúka HK Kórinn
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 10.4.2026 lögð fram beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn. Lagt fram til ákvörðunar.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10.4.2026 er lögð fram til ákvörðunar beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn.
Umræður og skýringar.
Samþykkt er með fjórum atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.
Gestur víkur af fundi kl. 15:45.
Fundarhlé hófst kl. 19:44, fundi fram haldið kl. 20:27.
Tillögu Helgu Jónsdóttur um frestun málsins hafnað með sex atkvæðum gegn atkvæðum Kolbeini Reginssyni, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.
Bæjarstjórn staðfestir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Hákonar Gunnarssonar afgreiðslu innkaupanefndar, dags. 13. apríl 2026, með fyrirvara um niðurstöðu kærunefndar útboðsmála, skv. 2. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016.
Bókun:
Undirrituð frábiður sér að bæjarstjóri geri henni upp skoðanir og ásetning í þessu máli, og væntir þess að forseti áminni bæjarstjóra. Siðareglur kveða á um að bæjarfulltrúar skuli sýna háttvísi og bera virðingu fyrir skoðunum annarra.
Undirrituð telur gögnin sem fylgja þessu máli vera ófullnægjandi með öllu. Enginn gæðamatstafla né rökstuðningur liggur fyrir og því er ótækt að taka ákvörðun.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
Matsaðferðarfræðin lá skýrt fyrir með vægi og forsendum við upphaf innkaupaferlisins. Niðurstöður matsins liggja fyrir varðandi verð, gæði og heildarniðurstöðu matsins. Við val á hagstæðasta tilboði var byggt á þessum atriðum. Að halda því fram að engin gögn eða rökstuðningur liggi fyrir er því alrangt.
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Bergur Þorri Benjamínsson
Fundargerð í sautján liðum.
Lagt fram.
5.10 - 26011311 - Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð
Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð.
5.11 - 26011302 - Breytingar á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa
Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um styrki til náms, verkæra- og tækjakaupa og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Kosning aðalmanns í Smárann og kosning varmanns í Kórinn.
Helga Magnúsdóttir er kosin aðalmaður í hverfiskjörstjórn í Smáranum í stað Magnúsar Þorsteinssonar.
Halla Evans er kosin varamaður í hverfiskjörstjórn í Smáranum í stað Skúla Hansen.