Ársreikningur Kópavogsbæjar 2025 - seinni umræða
Málsnúmer: 26041154
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1339. fundur
Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2025 til seinni umræðu.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Tónlistarhúss Kópavogs. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Bílastæðasjóðs Kópavogs. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og sögu ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn ársreikning Kópavogsbæjar, þ.e. ársreikning Kópavogsbæjar, A- og B-hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B-hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Bókun:
"Ársreikningur Kópavogsbæjar sýnir að hefðbundnar rekstrartekjur standa ekki undir rekstrarútgjöldum og munar þar yfir 400 m.kr. Afgangur ársins skýrist fyrst og fremst af sölu byggingarréttar, sem er einskiptistekjulind og verður ekki endurtekin. Á kjörtímabilinu hafa tekjur af sölu byggingarréttar numið yfir 10 milljörðum króna, en ekki má búast við sambærilegum eignasölutekjum á næstu árum.
Á sama tíma stóraukast skuldbindingar bæjarins jafnt í fjárfestingum sem rekstri. Langtímaskuldir bæjarins nema nú 31,2 milljörðum króna. Af þeirri fjárhæð greiðast aðeins 4,6 milljarðar upp fyrir árið 2030. Ný markaðsbréf að fjárhæð 5,4 milljarðar verða ekki að fullu greidd upp fyrr en árið 2055 og önnur að fjárhæð 7,5 milljarðar árið 2040. Flest lán bæjarins bera háa óbreytanlega vexti og verðtryggingu.
Þrátt fyrir þessa miklu skuldsetningu hefur heildstæð fjárfestingaráætlun aldrei verið lögð fyrir bæjarráð. Þannig hefur kostnaður sem greiða verður upp á komandi kjörtímabilum aldrei verið ræddur í bæjarráði og settur í samhengi við nauðsynlega uppbyggingu á kjörtímabilinu. Með þessari langtímaskuldsetningu hefur framkvæmdageta bæjarsjóðs verið bundin til allt að 30 ára, án þess að fyrir liggi hvaða áhrif það mun hafa á nauðsynlega framtíðaruppbyggingu bæjarins."
Kolbeinn Reginsson
Helga Jónsdóttir
Indriði I. Stefánsson
Jóhanna Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Afkoma ársins er ein sú besta í 18 ár. Heildarskuldir hafa lækkað um 11% á kjörtímabilinu og skuldahlutfallið farið úr 86% í 68% og hvergi á höfuðborgarsvæðinu hefur skuldahlutfall lækkað meira á síðustu fjórum árum. Á árinu 2025 voru engin lán tekin þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum. Reksturinn skilar 5 milljörðum króna eftir að leiðrétt hefur verið fyrir einskiptistekjum eins og lóðasölu. Þá er mikilvægt að árétta að tekjur af lóðasölu eru alls ekki notaðar til rekstrar heldur til fjárfestingar innviða og niðurgreiðslu skulda.
Ávinningi af góðum rekstri hefur verið skilað í formi lægri skatta en fasteignagjöld hafa lækkað að raunvirði á kjörtímabilinu og eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu."
Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bergur Þorri Benjamínsson
- 16. Málaflokkayfirlit 2025-seinni
- 17. Kópavogsbær endurskoðunarskýrsla - 2025
- 14. Ársreikningur-Vatni-2025-seinni
- 3. Eignasjóður 31.12.2025-seinni
- 19.Kópavogsbær_viðauki_UTÁbendingar og athugasemdir 2025
- 18. Kópavogsbær_viðauki I_Ábendingar og athugasemdir - 2025
- 7. Vatnsveita-31.12.2025-seinni
- 11. Húsnæðisnefnd-31.12.2025-seinni
- Breyting milli umræðna
- 13. Ársreikningur-Múík og saga
- 2. Aðalsjóður 31.12.2025-seinni
- 8. Hafnarsjóður-31.12.2025-seinni
- 10. Bílastæðasjóður-31.12.2025-seinni
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-2025-seinni
- 6. Fráveita-31.12.2025-seinni
- 5. Þjónustumiðstöð-31.12.2025-seinni
- 9. Tónlistarhús-31.12.2025-seinni
- 1. Kópavogsbær - ársreikningur ársins 2025-seinni
- 15. Deildaryfirlit samstæðu 2025-seinni
- 4. MK-31.12.2025-seinni
02
Bæjarráð - 3255. fundur
Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2025, ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Umræður.
Lagt fram til kynningar.
Gestir viku af fundi 8:30.
- 11. Húsnæðisnefnd-31.12.2025-s
- 15. Deildaryfirlit samstæðu 2025-seinni
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-2025-seinni
- 13. Ársreikningur-M
- 4. MK-31.12.2025-seinni
- 2. Aðalsjóður 31.12.2025-seinni
- 10. Bílastæðasjóður-31.12.2025-seinni
- 14. Ársreikningur-Vatni-2025-seinni
- 3. Eignasjóður 31.12.2025-seinni
- 6. Fráveita-31.12.2025-seinni
- 9. Tónlistarhús-31.12.2025-seinni
- 1. Kópavogsbær - ársreikningur ársins 2025-s
- 8. Hafnarsjóður-31.12.2025-seinni
- 16. Málaflokkayfirlit 2025-seinni
- 5. Þjónustumiðstöð-31.12.2025-seinni
- 7. Vatnsveita-31.12.2025-seinni
03
Bæjarstjórn - 1338. fundur
Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2025, ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu.
Fundarhlé hófst kl. 18:01, fundi fram haldið kl. 18:25
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2025, ásamt ársreikningum stofnana bæjarins, til seinni umræðu með 11 atkvæðum.
- 16. Málaflokkayfirlit 2025-fyrri
- 6. Fráveita-31.12.2025-fyrri
- 15. Deildaryfirlit samstæðu 2025-fyrri
- 10. Bílastæðasjóður-31.12.2025-fyrri
- 14. Ársreikningur-Vatni-31.12.2025-fyrri
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-31.12.2025-fyrri
- 7. Vatnsveita-31.12.2025-fyrri
- 5. Þjónustumiðstöð-31.12.2025-fyrri
- 1. Kópavogsbær - ársreikningur ársins 2025-fyrri
- 9. Tónlistarhús-31.12.2025-fyrri
- 3. Eignasjóður 31.12.2025-fyrri
- 8. Hafnarsjóður-31.12.2025-fyrri
- Leiðrétting frá fyrri útgáfu 16. apríl 2026
- 11. Húsnæðisnefnd-31.12.2025-fyrri
- 2. Aðalsjóður 31.12.2025-fyrri
- 4. MK-31.12.2025-fyrri
- 13. Ársreikningur-M
04
Bæjarráð - 3253. fundur
Lagður fram fullgerður ársreikningur Kópavogsbæjar, stofnana og fyrirtækja bæjarins fyrir árið 2025 og tilbúnn til endurskoðunar. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 14.04.2026.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl. 9:36.
Fundarhlé hófst kl. 9:37, fundi fram haldið kl. 10:59
Bæjarráð samþykkir ársreikning Kópavogsbæjar, stofnana og fyrirtækja bæjarins fyrir árið 2025 með fjórum atkvæðum og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bókun:
"Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær án lóðasölu. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Kópavogs vekja athygli á að hefðbundinn rekstur bæjarins stendur ekki undir sér. Samkvæmt ársreikningi virðist reksturinn skila afgangi upp á 4,2 milljarða króna. Raunin er hins vegar sú að reksturinn 2025 skilar 406 milljóna króna halla. Jákvæð niðurstaða byggist ekki á sjálfbærum rekstri heldur á 4,6 milljarða króna tekjum af sölu byggingarréttar. Samtals er halli af rekstri bæjarins á þessu kjörtímabili um 3 milljarðar króna, ef lóðatekjur eru frátaldar.
Sala lóðarréttindanna í Vatnsendahvarfi verður ekki endurtekin. Tekjur af lóðasölu eru ófyrirsjáanlegar og geta aldrei tryggt traustan daglegan rekstur sveitarfélagsins. Til þess þarf að gæta ábyrgðar; rekstrartekjur og fyrirséðar tekjur eiga að standa undir rekstrarútgjöldum. Það hefur ekki verið raunin hjá Kópavogsbæ. Ekki er gert ráð fyrir tekjum af lóðasölu í fjárhagsáætlun. Þess í stað er látið í veðri vaka að hagkvæmni í rekstri skili þeim afgangi sem innan hvers árs verður til vegna lóðasölu.
Fjárfestingarstig bæjarins hefur frá 2024 hækkað um 2.3 milljarða króna og ekki fást upplýsingar um framgang og framúrkeyrslu einstakra verkefna þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Veltufé frá rekstri er 8% lægra en áætlun gerði ráð fyrir. Öfugþróun þessa kjörtímabils, veikur undirliggjandi rekstur samhliða miklum fjárfestingum, kallar á skýra stefnu og ábyrgari fjármálastjórn.
Fulltrúar minnihlutans telja mikilvægt að:
- jafnvægi náist í rekstri án þess að treysta verði á tekjur af lóðasölu
- endurmeta forgangsröðun fjárfestinga og gera fjárfestingaráætlun
- tryggja að framkvæmd verkefna sé innan áætlana
Það er ekki sjálfbært að treysta á sölu eigna til að gefa mynd jákvæðrar niðurstöðu í rekstri. Það er engum til gagns að draga upp ófullkomna og fegraða mynd til að leyna stöðu sem er grafalvarleg. Kópavogsbúar eiga betra skilið."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Árin 2024 og 2025 eru tvö bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Sterk staða bæjarins birtist skýrt í ársreikningi síðasta árs og er afrakstur markvissrar forgangsröðunar og ábyrgra ákvarðana í rekstri. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð um 4,6 milljarða króna og þegar búið er að leiðrétta fyrir sölu lóðaréttinda er rekstur samstæðunnar að skila 4,8 milljörðum króna. Það er því einfaldlega rangt að halda því fram að daglegur rekstur sé ekki sjálfbær.
Fjárhagsleg staða bæjarins heldur áfram að styrkjast. Heildarskuldir og skuldbindingar lækka að raunvirði og skuldahlutfall fer lækkandi þrátt fyrir miklar og nauðsynlegar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum innviðum. Það er lykilatriði í huga meirihlutaflokkanna að uppbygging samfélagsins fari fram án þess að vegið sé að sjálfbærni sveitarfélagsins.
Ávinningi af góðum rekstri hefur verið skilað í formi lægri skatta en fasteignagjöld hafa lækkað að raunvirði á kjörtímabilinu og eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta stuðlar að stöðugleika í rekstri og skilar raunverulegum ábata til íbúanna."
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Bókun:
"Það er auðvelt að berja sér á brjóst þegar 4,6 milljarðar króna vegna eignasölu í formi byggingarréttar eru kynntir sem hagkvæmni í rekstri. Ekki liggur fyrir í fjárhagsáætlunum Kópavogsbæjar til hvaða viðfangsefna ráðstafa á ávinningi af sölu byggingarréttar. Ekki er heldur hægt að rekja það gegnum ársreikninginn. Ítrekaðar fyrirspurnir hafa ekki skilað svörum. Þetta á ekki bara við árið 2025 heldur allt kjörtímabilið. Veltufé frá rekstri Kópavogsbæjar dugar varla fyrir helmingi fjárfestinga og þá er ótaldar afborganir lána sem kalla á lántöku til framtíðar. Því er reksturinn ósjálfbær með öllu."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Árangurinn af góðum rekstri er augljós og birtingarmyndirnar eru margar. Afkoman er jákvæð og heildarskuldir halda áfram að lækka."
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Bókun:
"Á fundi bæjarráðs 12. mars 2026 lögðu undirritaðar fram fyrirspurn um innstreymi í bæjarsjóð Kópavogs vegna byggingarréttargjalda og annarra lóðagjalda frá upphafi kjörtímabils. Enn hefur ekkert svar verið lagt fyrir bæjarráð þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan og áminningar. Því er beint til bæjarstjóra að svar verði látið í té án frekari dráttar enda er um að ræða lögmæta, málefnalega og mikilvæga fyrirspurn, sem hefur grundvallarþýðingu í umfjöllun og umræðu um ársreikning og í samanburði á fjárhagsáætlunum og ársreikningum. Ekki er við það unandi að svar sem einfalt ætti að vera að keyra út úr bókhaldi bæjarins sé ekki veitt."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Þetta má lesa úr ársreikningi. Meirihlutinn telur ekkert því til fyrirstöðu að umbeðnar upplýsingar verði teknar saman og lagðar fram núna þegar ársreikningur liggur fyrir."
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:53.
- 1. Kópavogsbær - ársreikningur ársins 2025-fyrri
- 14. Ársreikningur-Vatni-31.12.2025-fyrri
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-31.12.2025-fyrri
- 3. Eignasjóður 31.12.2025-fyrri
- 2. Aðalsjóður 31.12.2025-fyrri
- 9. Tónlistarhús-31.12.2025-fyrri
- 7. Vatnsveita-31.12.2025-fyrri
- 15. Deildaryfirlit samstæðu 2025-fyrri
- 11. Húsnæðisnefnd-31.12.2025-fyrri
- 4. MK-31.12.2025-fyrri
- 6. Fráveita-31.12.2025-fyrri
- 5. Þjónustumiðstöð-31.12.2025-fyrri
- 13. Ársreikningur-M
- 16. Málaflokkayfirlit 2025-fyrri
- 8. Hafnarsjóður-31.12.2025-fyrri
- 10. Bílastæðasjóður-31.12.2025-fyrri
05
Bæjarráð - 3252. fundur
Lagður fram fullgerður ársreikningur Kópavogsbæjar, stofnana og fyrirtækja bæjarins fyrir árið 2025 og tilbúnn til endurskoðunar.
Kynning og Umræður
Gestir véku af fundi kl. 9:45
Fundarhlé hófst kl. 9:48, fundi fram haldið kl. 10:27.
Sigurbjörg E. Egilsdóttir vék af fundi kl. 10:20.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fresta málinu til næsta fundar bæjarráðs n.k. fimmtudag.