Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1186. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Helga Hauksdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

Önnur mál fundargerðir

01

Bæjarráð - 2936. fundur frá 29.11.2018

Hlé var gert á fundi kl. 17:10. Fundi var fram haldið kl. 17:15.

Fundargerð í 23. liðum.

Lagt fram.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég vek athygli á því að mengunarmælingar í Dalsmára leiddu í ljós Evrópumet í svifryki síðustu áramót. Svifryk getur borist í blóðstraum og lungu fólks, og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir því. Mengunin, sem stafar af óhóflegri flugeldanotkun, náði þessum mikla styrkleika í ljósi landfræðilegrar legu og lítilla vinda. Það er óskynsamlegt að safna fólki saman við slíkar aðstæður og því er mikilvægt að finna brennunni nýjan stað, ef ekki þessi áramót þá í það minnsta þau næstu og þar eftir.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"

Karen Elísabet Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Það er nauðsynlegt að halda því til haga að umrætt Evrópumet var í kringum miðnætti en ekki á þeim tíma sem brennan er haldin. Landfræðileg lega og verðurfar býður vissulega upp á aukna hættu á mengun og mögulega þurfa bæjaryfirvöld að huga að annarri staðsetningu brennunnar til framtíðar. Hins vegar er erfitt að sjá hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að flugeldum sé skotið upp á þessum tímamótum nema með inngripi stjórnvalda og þess áhrifaþátts að björgunarsveitir þurfa enn að fjármagna sig með sölu á mengandi sprengiefni.

Karen Elísabet Halldórsdóttir"


1.11 - 1811628 - Tillaga að breytingu á gjaldskrá vegna leyfisveitinga, eftirlits og annarra gjaldskyldra starfsemi og vegna hundahalds, 2019

Frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, lagðar fram tillögur um breytingar á gjaldskrám vegna matvæla-, heilbrigðis- og mengunareftirlits og vegna hundahalds.

Bæjarráð vísar tillögu að gjaldskrám heilbrigðiseftirlits 2019 til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum gjaldskrár heilbrigðiseftirlits 2019.


Önnur mál fundargerðir

02

Bæjarráð - 2937. fundur frá 06.12.2018

Fundargerð í 18. liðum.

Lagt fram.


2.1 - 1811127 - Sérstakur húsnæðisstuðningur - Íbúðalánasjóður

Frá deildarstjóra rekstrardeildar, dags. 27. nóvember, lagðar fram til samþykktar breytingar á afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings í samvinnu við Íbúðalánasjóð og samningsdrög að þjónustusamningi milli aðila þar að lútandi. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á síðasta fundi og óskaði eftir að sviðsstjóri velferðarsviðs myndi mæta til næsta fundar bæjarráðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum breytingu á afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings og drög að þjónustusamningi við Íbúðalánasjóð þar um. Bæjarstjórn veitir bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu á þjónustusamningi og fylgiskjali 1 með honum.


Önnur mál fundargerðir

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 255. fundur frá 09.11.2018

Fundargerð í 11. liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

04

Barnaverndarnefnd - 87. fundur frá 14.11.2018

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

05

Barnaverndarnefnd - 88. fundur frá 28.11.2018

Fundargerð í 2. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

06

Forsætisnefnd - 128. fundur frá 06.12.2018

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

07

Fundargerð 240. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis frá 5.11.2018

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

08

Fundargerð 241. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.11.2018

Fundargerð í 57. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

09

Íþróttaráð - 87. fundur frá 03.12.2018

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10

Leikskólanefnd - 100. fundur frá 15.11.2018

Fundargerð í 11. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11

Lista- og menningarráð - 95. fundur frá 15.11.2018

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12

Menntaráð - 34. fundur frá 20.11.2018

Fundargerð í 7. liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

13

Skipulagsráð - 40. fundur frá 03.12.2018

Lagt fram.


13.13 - 1811007 - Vesturvör. Deiliskipulag göturýmis.

Lögð fram tillaga Umhverfissviðs að deiliskipulagi göturýmis við Vesturvör milli Hafnarbrautar og Kársnesbrautar, Litluvör og Naustavör. Í tillögunni felst breytt skipulag göturýmisins. Vegtengingar eru bættar, tveimur hringtorgum er komið fyrir við gatnamót Vesturvarar og Naustavarar annarsvegar og við gatnamót Vesturvarar, Naustavarar og Litluvarar hinsvegar. Við austara hringtorgið er gert ráð fyrir nýrri tengingu til suðurs við Litluvör, undirgöngum vestan hringtorgsins og nýrri gönguleið milli lóðanna við Litluvör 17 og 19 sem tengir saman gönguleiðir sunnan og norðan Vesturvarar. Þá er gert ráð fyrir nýjum hljóðvörnum norðan Vesturvarar milli gatnamóta Vesturvarar og Naustavarar og bæði norðan og sunnan Vesturvarar milli gatnamóta Vesturvarar Naustavarar og Litluvarar.
Uppdrættir, greinargerð og skýringarmyndir dags. 3. desember 2018.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



13.14 - 1811696 - Kársnesbraut 76-84 og Vesturvör 7. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga Umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Kársnesbrautar 76-84 og Vesturvör 7. Í breytingunni felst að Litlavör lengist til vesturs um u.þ.b. 95 metra og tengist fyrirhuguðu nýju hringtorgi á gatnamótum Vesturvarar, Naustavarar og Litluvarar. Gert er ráð fyrir undirgöngum vestan hringtorgsins ásamt nýrri gönguleið milli Litluvarar 17 og 19. Lóðamörk og götuheiti við Litluvör og Kársnesbraut breytast við breytinguna. Lóðirnar Kásnesbraut 76-82 verða Litlavör 17-23. Lóðamörk lóðanna við Litluvör 17-19 færast sunnar, fyrirkomulag aðkeyrslna og byggingarreitur bílageymslu breytist.
Uppdráttur, greinargerð og skýringarmynd dags. 3. desember 2018.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



13.15 - 1811695 - Naustavör 1 og 3. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram erindi skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi Naustavarar 1-3(áður Vesturvör 10). Í breytingunni felst að lóðarmörk breytast og minnkar lóðin til allra átta um 2.670 m2 og verður eftir breytingu um 2.100 m2. Lega Naustavarar austan lóðar breytist með tilkomu nýs hringtorgs og aðkoma að lóð ásamt fyrirkomulagi bílastæða breytist. Í stað tveggja fjölbýlishúsa með 9 og 8 íbúðum eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir kemur einn byggingarreitur á 4 hæðum og kjallara með 17 íbúðum. Að öðru leiti er vísa í gildandi deiliskipulagsuppdrátt Bryggjuhvarfi í Kópavogi, samþykkt í bæjarstjórn 22. mars 2005 m.s.br. birt í B- deild Stjórnartíðinda 7. september 2016.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



13.4 - 1804680 - Álfhólsvegur 73. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar byggingarfræðings fh. lóðarhafa Álfhólsvegar 73. Ferill málsins er sá að á fundi skipulagsráðs 19. mars 2018 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns þar sem óskað var eftir áliti skipulagsráðs á breyttu fyrirkomulagi á lóðinni. Í breytingunni fólst að fjarlægja núverandi byggingu á lóðinni, einbýlishús byggt árið 1945 alls 70,3 m2 að flatarmáli og reisa í þess stað hús með sex íbúðum á þremur hæðum. Stærð íbúða var ráðgerð 82-106 m2 brúttó. Fyrirhuguð aukning byggingarmagns á lóðinni úr 70,3 m2 í 597 m2 og aukning íbúða úr einni í sex. Jafnframt var gert ráð fyrir að fjölga bílastæðum úr tveimur í 8 eða 1,3 stæði á íbúð. Nýtingarhlutfall á lóðinni hækkaði úr 0,08 í 0,66. Skipulagsráð ályktaði að tillagan hefði ekki jákvæð áhrif á aðliggjandi byggð og ekki samræmast rammaákvæðum aðalskipulags um breytingar í núverandi byggð hvað varðar byggingarmagn á lóðinni, hæð fyrirhugaðrar byggingar og legu byggingarreits. Þá lögð fram ný og breytt tillaga dags. 10. apríl 2018 þar sem gert er ráð fyrir 4ra íbúða húsi, samtals 524 m2, með 1,5 bílastæði á íbúð. Nýtingarhlutfall á lóðinni hækkar úr 0,08 í 0,597. Á fundi skipulasgráðs 7. maí 2018 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 56, 58, 60, 62, 64, 71, 75 og Lyngbrekku 8, 10, 12 og 14. Athugasemdafresti lauk 10. ágúst 2018. Athugasemdir og ábendingar bárust. Á fundi skipulagsráðs 20. ágúst 2018 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar.
Þá lögð fram breytt tillaga sem kemur til móts við sjónarmið í athugasemdum dags. 11. október 2018 ásamt fundargerð frá samráðsfundi dags. 11. október 2018. Á fundi skipulagsráðs 15. október var samþykkt að grenndarkynna breytta tillögu dags. 11. október 2018 fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 56, 58, 60, 62, 64, 71, 75 og Lyngbrekku 8, 10, 12, 14. Athugasemdafresti lauk 26. nóvember 2018. Athugasemd barst en var dregin til baka vegna yfirlýsingar lóðarhafa varðandi frágang á lóðarmörrkum. Þá lögð fram yfirlýsing lóðarhafa ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 17. september 2018.

Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



13.6 - 1809232 - Urðarhvarf 8. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga KRark fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 8. Í tillögunni felst að bætt er 350 m2 viðbyggingu á efstu hæð hússins. Á fundi skipulagsráðs 17. september 2018 var samþykkt að unnin verði tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Urðarhvarf 8 og hún auglýst með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Athugasemdafresti lauk 26. nóvember 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.


Önnur mál fundargerðir

14

7. fundargerð skólanefndar MK frá 6, nóvember 2018

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15

Fundargerð 464. fundar stjórnar SSH frá 26.11.2018

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16

Fundargerð 295. fundar stjórnar Strætó bs. 16.11.2018

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17

Fundargerð 86. fundar svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 09.11.2018

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

18

Umhverfis- og samgöngunefnd - 105. fundur frá 20.11.2018

Fundargerð í 11. liðum.

Lagt fram.

Með vísan til vinnu bæjarstjórnar við heildarstefnumótun Kópavogsbæjar vísar bæjarstjórn tillögu umhverfis- og samgöngunefndar um endurskoðun umhverfisstefnu til bæjarritara til umsagnar.


18.11 - 18082513 - Skilti og auglýsingar - Verklag

Lögð fram tillaga að samþykkt um skilti og auglýsingar í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma samþykkt um skilti og auglýsingar í Kópavogi. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn frestar afgreiðslu málsins.



18.3 - 1310510 - Gámar í Kópavogi

Lögð fram tillaga að samþykkt um stöðuleyfi í Kópavogi ásamt gjaldskrá fyrir stöðuleyfi fyrir gáma í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma samþykkt um stöðuleyfi í Kópavogi og gjaldskrá fyrir stöðuleyfi gáma. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum samþykkt um stöðuleyfi í Kópavogi og samþykkir með 11 atkvæðum gjaldskrá fyrir stöðuleyfi gáma.


Hlé var gert á fundi kl. 17:35. Fundi var fram haldið kl. 17:49.

Bæjarstjórn samþykkir með 8 samhljóða atkvæðum tillögu um að seinni fundur bæjarstjórnar í desember falli niður með vísan til ákvæða 3. mgr. 8. gr. bæjarmálasamþykktar Kópavogs. Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir greiddu ekki atkvæði.