Bæjarráð - 2936. fundur frá 29.11.2018
Málsnúmer: 1811023F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1186. fundur
Fundargerð í 23. liðum.
Lagt fram.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ég vek athygli á því að mengunarmælingar í Dalsmára leiddu í ljós Evrópumet í svifryki síðustu áramót. Svifryk getur borist í blóðstraum og lungu fólks, og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir því. Mengunin, sem stafar af óhóflegri flugeldanotkun, náði þessum mikla styrkleika í ljósi landfræðilegrar legu og lítilla vinda. Það er óskynsamlegt að safna fólki saman við slíkar aðstæður og því er mikilvægt að finna brennunni nýjan stað, ef ekki þessi áramót þá í það minnsta þau næstu og þar eftir.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Karen Elísabet Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Það er nauðsynlegt að halda því til haga að umrætt Evrópumet var í kringum miðnætti en ekki á þeim tíma sem brennan er haldin. Landfræðileg lega og verðurfar býður vissulega upp á aukna hættu á mengun og mögulega þurfa bæjaryfirvöld að huga að annarri staðsetningu brennunnar til framtíðar. Hins vegar er erfitt að sjá hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að flugeldum sé skotið upp á þessum tímamótum nema með inngripi stjórnvalda og þess áhrifaþátts að björgunarsveitir þurfa enn að fjármagna sig með sölu á mengandi sprengiefni.
Karen Elísabet Halldórsdóttir"
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 106. fundur
Lögð fram tillaga að samþykkt um stöðuleyfi í Kópavogi ásamt gjaldskrá fyrir stöðuleyfi fyrir gáma í Kópavogi.
Niðurstaða Umhverfis- og samgöngunefnd - 105
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma samþykkt um stöðuleyfi í Kópavogi og gjaldskrá fyrir stöðuleyfi gáma. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 106. fundur
Lögð fram tillaga að samþykkt um skilti og auglýsingar í Kópavogi.
Niðurstaða Umhverfis- og samgöngunefnd - 105
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma samþykkt um skilti og auglýsingar í Kópavogi. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.