Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1304. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Hanna Carla Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 400. fundur frá 23.08.2024

Fundargerð í fimm liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

02

Bæjarráð - 3184. fundur frá 29.08.2024

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.


2.1 - 24081203 - Tekjuskattsundanþága byggðasamlaga- breytt rekstrarform efnahaglegrar starfsemi Sorpu bs.

Frá SSH, dags. 16.08.2024, lagt fram erindi varðandi tekjuskattsundanþágu byggðasamlaga- breytt rekstrarform efnahaglegrar starfsemi Sorpu bs. Bæjarrráð frestaði málinu þann 22.08.2024 til næsta fundar og óskaði eftir því að fulltrúar Sorpu mæti til fundarins.

Með vísan til niðurstöðu í máli ESA nr. 81738 og fyrirliggjandi tillögu SSH um viðbrög við niðurstöðunni, samþykkir bæjarráð með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti að efnahagsleg starfsemi Sorpu bs. verði færð í félag, eða eftir atvikum félög, með takmarkaðri ábyrgð fyrir. Bæjarráð vísar málinu jafnframt til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu bæjarráðs.



2.3 - 24081777 - Uppfærsla samgöngusáttmálans

Frá SSH, dags. 21.08.2024, lagður fram uppfærður samgöngusáttmáli. Fyrirligggjandi eru gögn númeruð frá 1-4 sem óskað er eftir að verði rædd og afgreidd í bæjarráði og bæjarstjórn Kópavogs.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til síðari umræðu.



2.4 - 22061270 - Markavegur 7. Beiðni um skil á lóðarréttindum.

Frá bæjarlögmanni. Umsögn vegna beiðni lóðarhafa um að skila hesthúsalóð, Markavegi 7.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum skil á lóðinni Markavegur 7 í samræmi við beiðni lóðarhafa.


03

Bæjarráð - 3185. fundur frá 05.09.2024

Fundargerð í 16 liðum.

Lagt fram.

04

Íþróttaráð - 143. fundur frá 29.08.2024

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

05

Lista- og menningarráð - 166. fundur frá 28.08.2024

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.

06

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 108. fundur frá 28.08.2024

Fundargerð í þreumur liðum

Lagt fram.

07

Leikskólanefnd - 164. fundur frá 29.08.2024

Fundargerð í 17 liðum.

Lagt fram.

08

Skipulagsráð - 169. fundur frá 02.09.2024

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.


8.10 - 2408515 - Dalvegur 24. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 26. júlí 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Ragnars Magnússonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 24 við Dalveg er vísað til skipulagsráðs.
Sótt um byggingarleyfi fyrir þegar gerðum breytingum á innra skipulagi þar sem búið er að breyta annarri hæð atvinnuhúsnæðis í gistiheimili.
Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 24. febrúar 2024. Þá er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 30. ágúst 2024.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir tók aftur sæti á fundinum.

Skipulagsráð hafnar framlögðu erindi með tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 30. ágúst 2024. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Fundarhlé kl. 17:56 og fundi framhaldið kl. 17:59.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.



8.12 - 2402171 - Grænatún 20B. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 26. janúar 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Einar V. Tryggvasonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20B við Grænatún er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi til að byggja 11,1 m² sólstofu. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,36 í 0,37. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 24. október 2022 ásamt skráningartöflu dags. 25. janúar 2023.
Á fundi skipulagsráðs þann 5. febrúar 2024 var samþykkt að grenndarkynna erindið. Kynningartíma lauk 22. ágúst, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



8.13 - 24042487 - Hlíðarvegur 44. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 19. apríl 2024 þar sem umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 44 við Hlíðarveg um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir 18,1 m² viðbyggingu ofan á svalir annarrar hæðar á norð-vestur hlið hússins. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,37 í 0,40.
Á fundi skipulagsráðs þann 3. júní 2023 var samþykkt að grenndarkynna erindið. Kynningartíma lauk 29. ágúst 2024, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjrráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



8.5 - 2110841 - Borgarlínan, lota 2, leiðarval.

Lagt fram uppfært minnisblað frá Verkefnastofu Borgarlínu dags. 20. maí 2024 um legu 2. lotu Borgarlínu frá Hamraborg að Smáralind. Í minniblaðinu koma fram niðurstöður rýni Verkefnastofu Borgarlínu í samráði við Strætó bs og umhverfissvið Kópavogsbæjar á samanbuðri tveggja valkosta, legu Borgarlínu um Hafnarfjarðarveg annarsvegar og Digranesveg hinsvegar.
Sunna Björg Reynisdóttir og Hallbjörn R. Hallbjörnsson frá verkefnastofu Borgarlínu gera grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð samþykkir með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttir, Helgu Jónsdóttir og Hákonar Gunnarssonar að unnið verði áfram með valkost 1 og að lega 2. lotu Borgarlínu verði eftir Hafnarfjarðarvegi og Fífuhvammsvegi að Smáralind. Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum gegn atkvæði Kolbeins Reginssonar.


09

Velferðarráð - 135. fundur frá 26.08.2024

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð 582. fundar stjórnar SSH frá 21.08.2024

Fundargerð 582. fundar stjórnar SSH frá 21.08.2024.

Lagt fram.

11

Erindi til aðildarsveitarfélaga Strætó vegna aukaframlags

Frá Strætó bs., dags. 08.08.2024, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir auknu rekstrarframlagi vegna hækkunar kostnaðar við aðkeyptan akstur.

Niðurstaða Bæjarráð - 3182

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Niðurstaða

Bæjarstjórn frestar erindinu til næsta fundar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum aukið rekstrarframlag vegna hækkunar kostnaðar við aðkeyptan akstur.

12

Kosningar í jafnréttis- og mannréttindaráð 2022-2026

Helga G. Halldórsdóttir tekur sæti aðalmanns og Margrét Pála Ólafsdóttir tekur sæti varamanns.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að Helga G. Halldórsdóttir taki sæti aðalmanns og að Margrét Pála Ólafsdóttir taki sæti varamanns í jafnréttis- og mannréttindaráði.

13

Beiðni bæjarfulltrúa um lausn frá störfum tímabundið

Beiðni bæjarfulltrúa Andra Steins Hilmarssonar um framhald á tímabundinni lausn til frá 15. september og með 31. október 2024.

Bæjarstjórn samþykkir umbeðna tímabundna lausn til og með 31. október 2024.