Bæjarstjórn - 1203. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMargrét Friðriksdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
01
Samkomulag ríkis og SSH um uppbyggingu á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu - seinni umræða
Frá SSH, lagt fram til samþykktar samkomulag ríkis og SSH um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu 2019-2033 ásamt fylgigögnum.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum samkomulag ríkis og SSH um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir greiddi ekki atkvæði.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Markmið samkomulagsins eru góð, uppbygging innviða sem stuðlar að aukinni notkun virkra ferðamáta er eitt mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Það varðar bæði loftslagið, lýðheilsu og lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Margt er þó enn óútfært í samkomulaginu og óljóst hvað samþykki þess felur í sér, enda höfðu bæjarfulltrúar enga aðkomu að gerð þess og leynd ríkir um feril þess og áherslur þeirra sem komu að því. Opnara ferli hefði gefið fleirum tækifæri á aðkomu, sem hefði líklega leitt til betri afurðar ásamt því að auka traust, bæði til samkomulagsins og stjórnmála í heild. Mikilvægt er að útfærsla "sérstakrar fjármögnunar"! í samkomulaginu verði opnari og aðgengilegri en samningaferlið var. Gert er ráð fyrir að þessi hluti fjármögnunarinnar geti verið með ýmsum hætti eftir því hver vilji Alþingis kann að vera, að því gefnu að það samræmist markmiðum samkomulagsins. Mestu máli skiptir að í þeirri útfærslu verði ekki vegið að þeim tekjulægstu í samfélaginu né að friðhelgi einkalífs.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Undirritaðir bæjarfulltrúar lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð styðja samkomulag ríkis og sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu sem mun hraða nauðsynlegum framkvæmdum á öllu höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að stuðla að auknum lífsgæðum með skilvirkum samgöngubótum. Tekið er undir það sjónarmið sem kemur fram í samkomulaginu að álögur verði ekki umfram almennan ávinning notanda af þessari hröðun uppbyggingar. Það vekur sérstaklega ánægju að vegna þessa samkomulags að lúkning Arnarnesvegar er áætluð fyrir árslok 2021 samkvæmt tillögu að nýrri samgönguáætlun. Áhersla verður lögð á að íbúar Kópavogs verði upplýstir í ferlinu öllu sem framundan er.
Theódóra Þorsteinsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Jón Finnbogason, Einar Örn Þorvarðarson"
Umræður um niðurstöður starfshóps um heildarlausn úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu að beiðni Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata, þar sem markmiðið er að draga fram stefnu höfuðborgarsvæðisins við meðhöndlun úrgangs, stefnu Kópavogs um sama efni og hvort þær áherslur séu í samræmi við nýja stefnu umhverfis- og auðlindaráðherra er varðar hringrásarhagkerfið sem nú er í umsagnarferli. Jafnframt að ræða hvaða leið sé fær til þess að mótuð verði sameiginleg stefna á höfuðborgarsvæðinu fyrir meðhöndlun úrgangs.
Lagt fram.
Bæjarstjórn Kópavogs felur bæjarstjóra að leggja til við stjórn SSH að skipulögð verði ráðstefna um sameiginlegt flokkunarkerfi fyrir sorp á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið verður til þátttöku bæjarfulltrúum, borgarfulltrúum og sérfræðingum í málaflokknum.
Hlé var gert á fundi kl. 18:40. Fundi var fram haldið kl. 19:23.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 18 liðum.
Lagt fram.
4.6 - 1910214 - Gjaldskrá fyrir matvæla-, heilbrigðis og mengunareftirlits og gjaldskrá fyrir eftirlit með hundahaldi.
Frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, dags. 3. október, lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2020, ásamt tillögum að gjaldskrám fyrir eftirlit með hundahaldi og matvæla-, heilbrigðis- og mengunareftirlit til samþykktar.
Bæjarráð vísar tillögu að gjaldskrám heilbrigðiseftirlitsins fyrir eftirlit með hundahaldi og matvæla-, heilbrigðis- og mengunareftirlit til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögur að gjaldskrám fyrir eftirlit með hundahaldi og matvæla-, heilbrigðis- og mengunareftirlit.
Fundargerð í 6 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 44 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
9.4 - 1502338 - Menningarstyrkir 2015-2016
Reglur sjóðs lista- og menningarráðs lagðar fyrir.
Lista- og menningarráð samþykkir drög að nýjum reglum fyrir lista- og menningarsjóð. Í næstu úthlutun verður lögð áhersla á að styrkja verkefni og viðburði sem tengjast Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Reglum er vísað til afgreiðslu og staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu lista- og menningarráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 23 liðum.
Lagt fram.
11.3 - 1907234 - Vesturvör 50. Kársneshöfn. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Hjalta Brynjarssonar arkitekts fyrir hönd lóðarhafa Vesturvarar 50 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að stækka byggingarreitinn um 3,7 m. til norðurs og 4,8 m. til austurs. Hámarks byggingarmagn eykst úr 1500 m2 í 2200 m2, hámarksstærð grunnflatar stækkar úr 1000 m2 í 1350 m2 og mesta hæð hússins fer úr 9 m. í 12 m. Gert er ráð fyrir inndreginni 3 hæð, allt að 300 m2. Á fundi skipulagsráðs 15. júlí 2019 var samþykkt að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarráðs 25. júlí var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest. Kynningartíma lauk 18. september 2019. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
11.4 - 1908477 - Vesturvör 9. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Vífils Magnússonar, arkitekts fh. lóðarhafa Vesturvarar 9 þar sem óskað er heimildar til að reisa geymslu 43 m2 að flatarmáli við austurhlið hússins. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 4. júlí 2017. Á fundi skipulagsráðs 19. ágúst 2019 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt lóðarhöfum Vesturvara 9 og Kársnesbrautar 84 og 86. Kynningartíma lauk 26. september 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
11.6 - 1904921 - Álfhólsvegur 37. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Kristins Ragnarssonar dags. 7. nóvember 2017 fh. lóðarhafa Álfhólsvegar 37 þar sem óskað er eftir að byggja viðbyggingu við núverandi hús. Á lóðinni stendur einbýlishús ein hæð með kjallara og risi um 180 m2 að samanlögðum gólffleti byggt 1955. Lóðin er 1.021 m2 að flatarmáli og núverandi nýtingarhlutfall er 0,18. Í framlagðri byggingarleyfisumsókn er gert ráð fyrir að lyfta þaki núverandi húss um 1,0 m og byggja við húsið kjallara, hæð og ris samtals 212 m2 með þremur íbúðum. Samtals verða því fjórar íbúðir á lóðinni eftir breytingu, nýtingarhlutfall 0,38 og 6 bílastæði á lóð eða 1,5 stæði á íbúð. Á fundi skipulagsráðs 15. júlí 2019 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 24, 24a, 26, 28, 28a, 30, 30a, 35, 39 og Löngubrekku 33, 35 og 37. Kynningartíma lauk 22. ágúst 2019. Athugasemdir og ábendingar bárust. Á fundi skipulagsráðs 2. september 2019 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 7. október 2019.
Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu með tilvísan til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson greiðir atkvæði gegn því að hafna tillögunni.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
11.7 - 1902260 - Langabrekka 5. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Verkfræðistofu Ívars Haukssonar f.h. lóðarhafa dags. 27. september 2016 þar sem óskað er eftir að byggja 21,7 m2 bílgeymslu sem verður áföst vesturhlið hússins að Löngubrekku 5 sbr. framlagða uppdrætti í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27.9.2016. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa á aðliggjandi lóð, Löngubrekku 7. Á fundi skipulagsráðs 18. febrúar var afgreiðslu frestað. Þá lögð fram undirrituð yfirlýsing lóðarhafa um að hann standi straum af öllum kostnaði við að færa fráveitulögn sem er staðsett þar sem bílageymslan á að rísa. Einnig samþykkir hann að starfsmenn umhverfissviðs hafi eftirlit með framkvæmdinni. Á fundi skipulagsráðs 20. maí 2019 var afgreiðslu málsins frestað. Á fundi skipulagsráðs 29. júlí 2019 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt lóðarhöfum Löngubrekku 1-13, Laufbrekku 1 og 3 og Álfhólsvegar 59 og 61. Kynningartíma lauk 30. ágúst 2019. Athugasemdir og ábendingar bárust. Á fundi skipulagsráðs 2. september 2019 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 7. október 2019.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fundarhlé kl. 17:15
Fundi fram haldið kl. 17:22
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
- Grenndarkynningaruppdráttur. Ágúst 2019.
- Athugasemd frá lóðarhöfum Löngubrekku 9.
- Athugasemd frá lóðarhöfum Álfhólsvegi 61.
- Yfirlýsing lóðarhafa Löngubrekku 5 varðandi greiðslu á kostnaði við að færa fráveitulögn og samþykki kvaðar um eftirlit umhverfissviðs með framkvæmdinni.
- Yfirlýsing vegna færslu á lögn á lóðinni.
- 191007_Umsögn_Langabrekka
- kynningarglærur fyrir bæjarráð. Langabrekka 5.
11.9 - 1909365 - Akrakór 12. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram erindi Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 11. september 2019 fh. lóðarhafa Akrakórs 12 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að á lóðinni rísi parhús í stað einbýlishúss eins og gildandi deiliskipulag segir til um. Húsið verður á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúrum og tveimur bílastæðum á íbúð. Stærð íbúða er áætluð 200m2 og 207 m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200 dags. í september 2019.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi Akrakórs 12 verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
17.8 - 1712764 - Áfangaheimilið D-27
Þjónustusamningur við Samhjálp 2019-2021 lagður fram.
Velferðarráð samþykkti framlögð samningsdrög fyrir sitt leyti.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum þjónustusamning við Samhjálp.
Birkir Jón Jónsson kjörinn aðalmaður í stað Helgu Maríu Hallgrímsdóttur.
Guðmundur Þór Jóhannesson kjörinn varamaður í stað Hjartar Sveinssonar.