Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1194. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Másson

Dagskrá fundar

01

Tillaga um að Kópavogsbær taki yfir heimahjúkrun aldraðra

Frá bæjarfulltrúum Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata, tillaga um að Kópavogur taki yfir heimahjúkrun aldraðra frá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að samþætta heimaþjónustu sem veitt er af Kópavogsbæ og heimahjúkrun sem veitt er af ríkisvaldinu. Bæjarstjóra verði falið að ganga til viðræðna við heilbrigðisráðuneytið um yfirtöku Kópavogs á málaflokknum. Tillögunni verði jafnframt vísað til Öldungaráðs til umsagnar.

Breytingartillaga:

Lagt er til að í stað þess að bæjarstjóra verði falið að ganga til viðræðna við heilbrigðisráðuneytið verði bæjarstjóra falið að meta kosti og galla þess að yfirtaka heimahjúkrun aldraðra frá heilsugæslunni. Við úrvinnsluna verði meðal annars gerð kostnaðargreining á verkefninu, skýr verkefnalýsing og hvort lagalegir annmarkar kunni að vera á því.

Ármann Kr. Ólafsson

Margrét Friðriksdóttir

Karen E. Halldórsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Guðmundur G. Geirdal

Birkir J. Jónsson

Fundarhlé hófst kl. 17:25, fundi fram haldið kl. 17:31

Bókun:

"Undirrituð fagna áhuga meirihlutans á málinu og breytingartillögu þeirra um greiningu, enda gerir tillaga okkar ráð fyrir að slík greining fari fram."

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Einar Ö. Þorvarðarson

Pétur H. Sigurðsson

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna með 11 atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna svo breytta með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2952. fundur frá 28.03.2019

Fundargerð í 13. liðum.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2953. fundur frá 04.04.2019

Fundargerð í 19. liðum.

Lagt fram.

04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 264. fundur frá 21.03.2019

Fundargerð í 16. liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

05

Forsætisnefnd - 136. fundur frá 04.04.2019

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.

06

Fundargerð 244. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 25. mars 2019

Fundargerð í 20. liðum.

Lagt fram.

07

Leikskólanefnd - 105. fundur frá 21.03.2019

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

08

Menntaráð - 40. fundur frá 19.03.2019

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram.

09

Skipulagsráð - 48. fundur frá 01.04.2019

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 27.2.2019

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 869. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15. mars 2019

Fundargerð í 19. liðum.

Lagt fram.

12

Fundargerð 180. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 29. mars 2019

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 301. fundar stjórnar Strætó bs. frá 15.03.2019

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 88. fundar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins 22.03.2019

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

15

Velferðarráð - 43. fundur frá 21.03.2019

Fundargerð í 7. liðum.

Lagt fram.

16

Umhverfis- og samgöngunefnd - 113. fundur frá 01.04.2019

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.