Bæjarstjórn - 1307. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Siðareglur kjörinna fulltrúa.
Bæjarstjórn vísar erindinu til forsætisnefndar til frekar úrvinnslu.
Fundargerð í sjö liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í tíu liðum.
Lagt fram.
3.4 - 24051876 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Frá fjármálasviði, lagður fram viðauki níu við fjárhagsáætlun 2024. Viðaukinn er vegna vistunar barna utan heimilis skv. ákvæðum barnaverndarlaga nr.80/2002 að upphæð 197.944.917 kr.
Bæjarráð vísar framlögðum viðauka til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2024. Viðaukinn er vegna vistunar barna utan heimilis skv. ákvæðum barnaverndarlaga nr.80/2002 að upphæð 197.944.917 kr.
3.5 - 2410362 - Fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins og gjaldskrá fyrir árið 2025
Frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, dags. 03.10.2024 lögð fram til samþykktar fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins og gjaldskrá fyrir árið 2025.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins og gjaldskrá fyrir árið 2025.
Fundargerð í 18 liðum.
Lagt fram.
4.2 - 24091455 - Drög að uppfærðum lóðarleigusamningum
Frá umhverfissviði, dags. 17.09.2025, lögð fram til samþykktar drög að uppfærðum lóðaleigusamningum. Um er að ræða annars vegar lóðarleigusamningar fyrir óbyggðar lóðir og hins vegar fyrir endurnýjun lóðarleigusamninga á eldri lóðum. Bæjarráð frestaði erindinu 19.09.2024 og þann 26.09.2024 var lögð fram greinargerð. Eru nú lögð fram uppfærð drög að fyrirmynd lóðarleigusamninga.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum framlögð drög fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Helga Jónsdóttir og Theodóra S. Þorsteinsdóttir sitja hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur framlögð drög að uppfærðum lóðaleigusamningum fyrir óbyggðar lóðir og hins vegar fyrir endurnýjun lóðarleigusamninga á eldri lóðum.
- Greinargerð um drög að uppfærðum lóðarleigusamningum
- Til bæjarráðs,
- Uppfærður lóðarleigusamningur endurnýjun - Yfirfarið okt 2024
- Uppfærður lóðarleigusamningur óbyggð lóð - Yfirfarin drög okt 2024
- Lóðarleigusamningar - uppfærsla 2_HJ
- Uppfærður lóðarleigusamningur óbyggð lóð
- Uppfærður lóðarleigusamningur endurnýjun
- Eldri lóðarleigusamningur - endurnýjun
- Eldri lóðarleigusamningur - óbyggð lóð
Fundargerð i fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
6.13 - 24061598 - Huldubraut 25. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfultrúa dags. 14. júní 2024 þar sem umsókn Vigfúss Halldórssonar arkitekts f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst viðbygging við suðurhlið núverandi húss á lóðinni, sólstofa, alls 5,1 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall á lóðinni eftir breytingu verður 0,17.
Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 29. apríl 2024 ásamt skráningartöflu (reyndarteikningar). Á fundi skipulagsráðs þann 19. ágúst var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 3. október, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
6.14 - 24071731 - Vallargerði 6. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 12. júlí 2024 þar sem umsókn Stefáns Guðmundssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Vallargerði um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um að hækka húsið um eina hæð. Við það eykst byggingarmagn á lóðinni um 120,7 m² úr 106,9 m² í 227,6 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,12 í 0,26. Á fundi skipulagsráðs þann 19. ágúst var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 3. október, eitt erindi barst.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
6.4 - 24041399 - Borgarlínan í Kópavogi. Lota 1. Breytt deiliskipulag Kársneshafnar. Bakkabraut norðan Vesturvarar.
Lögð fram tillaga skipulagsdeildar dags. 3. október 2024 að breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar fyrir Bakkabraut norðan Vesturvarar. Skipulagsbreytingin nær til þess gatnarýmis sem tengist fyrirhugaðri Borgarlínu og þeim samgöngumannvirkjum sem henni fylgja. Borgarlínustöð er staðsett við norðurmörk lóða Hafnarbrautar 27 og Vesturvarar 30. Lóðarmörkum nærliggjandi lóða er breytt og innviðum Borgarlínu afmarkað 25m breitt bæjarland við stöðina. Innan þess er reiknað með að komist með góðu móti fyrir gang- og hjólastígar sitt hvoru megin (5m), brautarpallar sitt hvoru megin og 7m breytt sérrými Borgarlínu. Nákvæm útfærsla stöðvar ákvarðast í verkhönnun Borgarlínu. Byggingarreitur er vítt afmarkaður yfir 67 lengdarmetra. Innan þess svæðis mega og skulu öll mannvirki og götugögn stöðvarinnar rísa. Þar með talið skýli, bekkir, tillibekkir, grindverk, handrið og pollar, hjólastæði, ruslastampar, upplýsingaskilti, auðkennismerki stöðvar, sértæk lýsing og rampar.
Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 3. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins D. Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Í ljósi þess að haldið er fast í þær hugmyndir að aðeins „Borgarlínan“ verði frá Vesturvör að brúarsporðinum og því lokað fyrir aðkomu að lóðum fyrirtækja að miklu leyti og stærra vegstæði tekið undir en þörf krefur ásamt því að taka hluta lóða af lóðarhöfum er undirrituðum ógerlegt annað en að vera á móti þeirri bókun sem lögð er fram.“
Kristinn Dagur Gissurarson
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
6.6 - 24082673 - Sjóvarnir við smábátabryggju. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram umsókn framkvæmdadeildar dags. 28. ágúst 2024 ásamt fylgigögnum um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á grjóthleðslu við smábátahöfnina á Kársnesi. Erindið var lagt fram á fundi skipulagsráðs þann 16. september 2024 og afgreiðslu var frestað.
Þá eru lögð fram uppfærð gögn dags. 19. september 2024 ásamt minnispunktum um fyrirkomulag smábátahafnar dags. 4. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins D. Gissurarsonar, Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
6.7 - 24091148 - Breiðahvarf 2. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga skipulagsdeildar dags. 3. október 2024 að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Breiðahvarf. Flatarmál lóðarinnar er 4919 m² og á henni er einbýlishús á tveimur hæðum. Í breytingunni felst að skipta lóðinni upp sex lóðir. Lóðin þar sem húsið stendur í dag mun því minnka og vestan við hana er gert ráð fyrir nýrri einbýlishúsalóð með nýtingarhlutfallið 0,23. Til suðurs er gert ráð fyrir fjórum nýjum lóðum fyrir parhús með nýtingarhlutfallið 0,43.
Á fundi skipulagsráðs þann 16. júlí 2024 var fyrirspurn lóðarhafa um breytt fyrirkomulag lóðarinnar lögð fram og þá var samþykkt að hefja mætti vinnu við gerð breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar.
Uppdráttur í mkv. 1:2000 og 1:500 dags. 3. október 2024 ásamt minnisblaði skipulagsdeildar dags. 4. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
7.3 - 2409224 - Samstarf - Hrafnista og félagsmiðstöð Boðaþingi
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að samstarfi við Hrafnistu vegna Boðaþings.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að fela sviðsstjóra velferðarsviðs heimild til að ganga til samninga við Hrafnistu um rekstur félagsmiðstöðvarinnar í Boðaþingi með fyrirvara um jákvæða umsögn innkaupadeildar.
Velferðar ráð vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að veita sviðsstjóra velferðarsviðs heimild til að ganga til samninga við Hrafnistu um rekstur félagsmiðstöðvarinnar í Boðaþingi.
- Minnisblað 10.10.2024
- Minnisblað vegna samstarfs við Hrafnistu 23.09.24
- Minnisblað Samkomulag um rekstur og starfsemi félagsmiðstöðvar Boðaþings 9.9.24
- Minnisblað Samkomulag um rekstur og starfsemi félagsmiðstöðvar Boðaþings 18.9.24
- Umsögn vegna Hrafnistu 29.9.2024
- Þjónustusamningur um Boðann - Lokadrög
- Kynning Boðinn - Velferðarráð 9.9.24
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
- Minnisblað Roðasalir fyrir bæjarstjórn 22.10.2024
- Fylgiskjal 1 - Minnisblað dags. 11.10.2024
- Fylgiskjal 2 - Niðurstöður vinnustaðagreiningar og frumkvæðisathugunar í Roðasölum 2024
- Fylgiskjal 3 - Ósk um fund með ráðherra
- Fylgiskjal 4 - Svar heilbrigðisráðuneytisins 20.6.2024
- Minnisblað lögfræðideildar vegna Roðasala
- Svar bæjarlögmanns við fyrirspurn um aðkomu öldungaráðs.
8.1 - 24051201 - Roðasalir
Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram tillögu um að afgreiðslu málsins yrðir frestað og málinu vísað til umsagnar öldungaráðs Kópavogs. Tillagan var felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Soumiu I. Georgsdóttur.
Hlé var gert á fundi kl. 16:55 og hófst hann aftur kl. 17:03.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi og vísar málinu áfram til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn með fimm atkvæðum gegn atkvæði Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og hjásetu Soumiu I. Georgsdóttur.
Hlé var gert á fundi kl. 17:04 og hófst hann aftur kl. 17:13.
Bókanir:
Undirrituð harma að meirihluti fulltrúa í velferðarráði hafni frestun málsins og vísun þess til umsagnar öldungaráðs. Hlutverk öldungaráðs er skv. erindisbréfi að vera vera „formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við bæjarstjórn um hagsmuni aldraðra þar sem fjallað er um þjónustu við aldraða, framkvæmd hennar og þróun“.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Erlendur Geirdal
Soumia I. Georgsdóttir
Rekstur og starfsemi hjúkrunarheimila fellur ekki undir lögbundnar skyldur og þjónustu sveitarfélaga og því teljum við eðlilegasti farvegur þessa máls að fara fyrir bæjarráð og bæjarstjórn.
Björg Baldursdóttir
Svava Halldóra Friðgeirsdóttir
Matthías Björnsson
Hjördís Ýr Johnson
Hólmfríður Hilmarsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur tillögu um að endurnýja ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum, heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar heimilisins flytjist í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.
8.5 - 23111597 - Lengri opnun á kaffistofu Samhjálpar
Lögð fram tillaga velferðarsviðs dags. 10.10.2024, um þátttöku í lengri opnun kaffistofu Samhjálpar, ásamt tilgreindu fylgiskjali.
Velferðarráð samþykkir tillögu velferðarsviðs um þátttöku í lengri opnun kaffistofu Samhjálpar fyrir sitt leyti og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu velferðarsviðs um þátttöku í lengri opnun kaffistofu Samhjálpar.
Fundargerð 586. fundar stjórnar SSH frá 07.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 397. fundar stjórnar Strætó frá 13.09.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 503. fundar stjórnar Sorpu bs. 18.09.2024.
Lagt fram.
Andri Steinn Hilmarsson er kosinn aðalmaður í bæjarráði í stað Elísabetar B. Sveinsdóttur.
Andri Steinn Hilmarsson er kjörinn aðalmaður í skipulagsráð í stað Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson er kosinn varamaður í stað Helga Ólafssonar.
Andri Steinn Hilmarsson er kosinn aðalmaður í stjórn strætó.
Hjördís Ýr Johnson er kosin varðamaður í stjórn Strætó.
Andri Steinn Hilmarsson er kosinn varamaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur.
Andri Steinn Hilmarsson er kosinn varamaður í stað Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur.