Bæjarstjórn - 1334. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundargerð í tíu liðum.
Bæjarstjórn staðfestir fundargerð byggingarfulltrúa með 9 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 18:23, fundi fram haldið kl. 18:48.
Bókun:
"Undirrituð árétta að siðareglur kjörinna fulltrúa eiga ekki að vera tæki til að aga pólitíska andstæðinga, heldur sameiginlegur mælikvarði sem á að gilda jafnt um alla kjörna fulltrúa, óháð því hvort viðkomandi sitji í meirihluta eða minnihluta. Undirrituð telja nauðsynlegt að til staðar séu skýr viðmið um það hvort, hvenær og með hvaða hætti forsætisnefnd hlutast til um störf og framgöngu kjörinna fulltrúa, og að þau gildi jafnt fyrir alla. Við bíðum niðurstöðu forsætisnefndar sem í apríl 2025 frestaði afgreiðslu tveggja mála og fól starfsmanni nefndarinnar að afla upplýsinga um í hvaða farveg álitamál varðandi siðareglur eigi að fara innan stjórnkerfisins."
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Bergljót Kristinsdóttir
Einar Örn Þorvarðarson
Bókun:
"Undirrituð hafa orðið vör við opinbera umfjöllun og framgöngu kjörins fulltrúa þar sem notaður hefur verið titill bæjarfulltrúa í tengslum við umfjöllun um mál sem varða sveitarfélagið, auk birtingar efnis um starfsfólk bæjarins á opinberum vettvangi. Undirrituð árétta að samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa ber þeim að sýna háttvísi, ábyrgð og virðingu í samskiptum og gæta þess að framganga þeirra grafi ekki undan trausti á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Undirrituð telja mikilvægt að þessi sjónarmið séu höfð að leiðarljósi í störfum kjörinna fulltrúa og í allri opinberri umfjöllun um málefni sveitarfélagsins.
Leggja undirrituð áherslu á að kjörnir fulltrúar beri sérstaka ábyrgð þegar þeir tjá sig opinberlega, ekki síst þegar fjallað er um einstaklinga í störfum sínum og að opinber umfjöllun skuli ávallt vera málefnaleg og í samræmi við siðareglur."
Hjördís Ýr Johnson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
4.4 - 2401489 - Reglur um fjárhagsaðstoð
Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim áfram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.
4.6 - 2602490 - Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Vegna bráða- og viðbragðsteymis barna og ungmenna
Lagður fram til afgreiðslu samstarfssamnningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna ásamt drögum að verklagsreglum teymisins.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna.
- Fylgibréf KOP- viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
- 1. Drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi
- 2. Drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps
- 3. Samstarfsyfirlýsing vegna þátttöku BOFS og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
- 4. Styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar
- 5. Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH frá 02.02.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.12.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 03.02.2026.
Lagt fram.