Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Forsætisnefnd - 250. fundur frá 19.02.2026

Málsnúmer: 2602023F

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1335. fundur

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

02

Bæjarstjórn - 1334. fundur

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 18:23, fundi fram haldið kl. 18:48.

Bókun:

"Undirrituð árétta að siðareglur kjörinna fulltrúa eiga ekki að vera tæki til að aga pólitíska andstæðinga, heldur sameiginlegur mælikvarði sem á að gilda jafnt um alla kjörna fulltrúa, óháð því hvort viðkomandi sitji í meirihluta eða minnihluta. Undirrituð telja nauðsynlegt að til staðar séu skýr viðmið um það hvort, hvenær og með hvaða hætti forsætisnefnd hlutast til um störf og framgöngu kjörinna fulltrúa, og að þau gildi jafnt fyrir alla. Við bíðum niðurstöðu forsætisnefndar sem í apríl 2025 frestaði afgreiðslu tveggja mála og fól starfsmanni nefndarinnar að afla upplýsinga um í hvaða farveg álitamál varðandi siðareglur eigi að fara innan stjórnkerfisins."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Kolbeinn Reginsson

Bergljót Kristinsdóttir

Einar Örn Þorvarðarson


Bókun:

"Undirrituð hafa orðið vör við opinbera umfjöllun og framgöngu kjörins fulltrúa þar sem notaður hefur verið titill bæjarfulltrúa í tengslum við umfjöllun um mál sem varða sveitarfélagið, auk birtingar efnis um starfsfólk bæjarins á opinberum vettvangi. Undirrituð árétta að samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa ber þeim að sýna háttvísi, ábyrgð og virðingu í samskiptum og gæta þess að framganga þeirra grafi ekki undan trausti á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Undirrituð telja mikilvægt að þessi sjónarmið séu höfð að leiðarljósi í störfum kjörinna fulltrúa og í allri opinberri umfjöllun um málefni sveitarfélagsins.

Leggja undirrituð áherslu á að kjörnir fulltrúar beri sérstaka ábyrgð þegar þeir tjá sig opinberlega, ekki síst þegar fjallað er um einstaklinga í störfum sínum og að opinber umfjöllun skuli ávallt vera málefnaleg og í samræmi við siðareglur."

Hjördís Ýr Johnson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Björg Baldursdóttir

Andri S. Hilmarsson