Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1269. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar

Lögð fram tillaga um hækkun útsvarshlutfalls Kópavogsbæjar á árinu 2023 úr 14,48% í 14,70%. Tillagan er lögð fram vegna samkomulags milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og þriggja ráðuneyta um sérstaka viðbótarfjármögnun á þjónustu við fatlað fólk frá 16. desember 2022. Samkomulagið gerir ráð fyrir lækkun tekjuskatts í sama hlutfalli. Hér er því einungis um tilfærslu fjármagns að ræða en ekki eiginlega útsvarshækkun.

Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að hækka útsvarshlutfall Kópavogsbæjar á árinu 2023 úr 14,48% í 14,70%.