Bæjarstjórn - 1319. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllElísabet Berglind Sveinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2024.
Fundarhlé hófst kl. 16:11, fundi fram haldið kl. 16:57.
Fundarhlé hófst kl. 18:35, fundi fram haldði kl. 18:56.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2024, ásamt ársreikningum stofnana bæjarins, til seinni umræðu með 11 atkvæðum.
Tillaga:
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að leggja fyrir bæjarráð tillögu um kerfi og ferli til að bregðast við ágöllum í innra eftirliti Kópavogsbæjar. Tillagan verði lögð fyrir bæjarráð fyrir síðari umræðu um ársreikninginn í bæjarstjórn. Markmiðið er að gera bæjarráði kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu fyrir hönd bæjarstjórnar skipulega og formlega.
Greinargerð:
Bæjarstjórn ber ábyrgð á að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits og það sé formlegt, skjalfest og sannreynt reglulega. Innra eftirlitið á að vera til þess fallið að veita vissu um að sveitarfélagið nái árangri og skilvirkni í starfsemi í samræmi við markmið sveitarfélagsins, að það veiti áreiðanlegar og réttmætar fjárhagsupplýsingar til ytri aðila og það hlíti lögum og reglum sem gilda um starfsemina. Í 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er kveðið á um það sem hlutverk bæjarráðs að hafa eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess og sjá um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu. Til að bæjarráð geti gegnt þessum hlutverkum sínum þarf reglubundið að leggja fyrir það greiningar og upplýsingar um stöðu mála, tillögur um nauðsynlegar úrbætur og tímasetningu aðgerða.
Í yfirlýsingu bæjarstjórnar um stjórnarhætti, sem fylgir ársreikningnum er vísað í 2. tölulið 44 gr. sveitarstjórnarlaga, regluna um kynjahlutföll í nefndum sem bæjarstjórn velur í. Þar kemur fram að Kópavogsbær gæti að þessum reglum við skipan í nefndir. Þó liggur fyrir að Kópavogsbær er sem sakir standa brotlegur gegn þessari löggjöf. Óhjákvæmilegt er að bæta úr.
Bergljót Kristinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir
Breytingatillaga:
"Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að leggja fyrir bæjarráð tillögu um kerfi og ferli til að bregðast við ábendingum í innra eftirliti Kópavogsbæjar. Verður farið í mótun tillögu og aðgerðir eftir að endanleg skýrsla endurskoðenda liggur fyrir 13. maí."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótu Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur tillöguna svo breytta.
- 1. Ársreikningur samstæða 2024-fyrri
- 2. Aðalsjóður 2024-fyrri
- 3. Eignasjóður 2024-fyrri
- 4. MK 2024-fyrri
- 5. Þjónustumiðstöð 2024-fyrri
- 6. Fráveita 2024-fyrri
- 7. Vatnsveita 2024-fyrri
- 8. Kópavogshöfn 2024-fyrri
- 9. Tónlistarhús 2024-fyrri
- 10. Bílastæðasjóður 2024-fyrri
- 11. Húsnæðisnefnd 2024-Fyrri
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-2024
- 13. Ársreikningur-M
- 14. Ársreikningur-Vatni-2024
- 15. Drög - Kópavogsbær endurskoðunarskýrsla 2024
Fundargerð í tíu liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 19 liðum.
Fundarhlé hófst kl. 19:06, fundi fram haldið kl. 19:13
Lagt fram.
Fundargerð í 21 lið.
Lagt fram.
4.1 - 25041992 - Ráðning áhættu- og fjárstýringarstjóra
Frá hæfnisnefnd, lögð fram tillaga að ráðningu ásamt rökstuðningi.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 12:45 vegna vanhæfis undir þessum lið.
Gestir véku af fundi kl. 13:01
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 19:11 vegna vanhæfis undir þessum dagskrárlið.
Bókun:
"Undirrituð lýsir sig vanhæfa til að taka þátt í afgreiðslu málsins."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum að Sindri Sveinsson verði ráðinn áhættu- og fjárstýringarstjóri Kópavogsbæjar.
4.2 - 25041993 - Ráðning umbóta- og þróunarstjóra
Frá hæfnisnefnd, lögð fram tillaga að ráðningu ásamt rökstuðningi.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir tók sæti að nýju kl.13:28 undir þessum lið.
Gestir véku af fundi kl. 13:44
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir tók sæti að nýju kl. 19:17.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að Védís Hervör Árnadóttir verði ráðin umbóta- og þróunarstjóri Kópavogsbæjar.
4.4 - 2206319 - Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2022-2026
Lagður fram viðauki við ráðningarsamning um starf bæjarstjóra.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur framlagðan viðauka við ráðningarsamning bæjarstjóra.
4.6 - 25031723 - Gjaldskrár 2025
Frá menntasviði, lögð fram til samþykktar bæjarráðs uppfærð gjaldskrá varðandi tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla ásamt reglum. Bæjarráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 10.04.2025 og frestaði því.
Bæjarráð vísar framlagðri tillögu að breytingu á tekjuviðmiðum vegna tekjutengdra afslátta, dags. 7. apríl 2025 og reglum um tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla, dags. 7. apríl 2025 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum uppfærða gjaldskrá varðandi tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla og reglur.
Bókun:
Undirrituð fer fram á að breytingar á gjaldskrá leikskólagjalda sem snúa að vísitölutengingu tekjuviðmiða verði kynnt foreldrum leikskólabarna með tölvupósti í gegnum Völuna samskiptaforrit leikskóla og foreldra. Foreldrar munu að öðrum kosti ekki vita að þeir ættu mögulega rétt á afslætti.
Bergljót Kristinsdóttir
4.7 - 25041402 - Sumarnámskeið 2025 - gjaldskrár
Frá menntasviði, lögð fram til samþyktar bæjarráðs tillögur að breytingum á gjaldskrá sumarstarfa.
Bæjarráð vísar framlögðum breytingum á gjaldskrá sumarnámskeiða til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að gjaldskrá vegna sumarstarfa verði óbreytt frá fyrra ári og taki aðeins breytingum til samræmis við þróun vísitölu verðlags og launa milli ára.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
6.6 - 24021690 - Smiðjuvegur 76. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram uppfærð tillaga Nordic Office of Architecture ehf. dags. 4. apríl 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 76 við Smiðjuveg um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst að komið verði fyrir 1093m² viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni. Lóðarmörk breytast í samræmi við fyrirhugaða viðbyggingu og stækka til norðausturs og mörk skipulagssvæðis breytast einnig í samræmi við tillögu að lóðarstækkun. Lóðin stækkar úr 6049m² í 7471,3m², heildar byggingarmagn eykst úr 3012.7m² í 4105.7m² og nýtingarhlutfall eykst úr 0,50 í 0,55. Á fundi skipulagsráðs þann 15. júlí 2024 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 28. október 2024 og athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs þann 4. nóvember 2024 var erindið lagt fram að nýju að lokinni kynningu ásamt innsendum athugasemdum. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Uppfærður uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 4. apríl 2025.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 4. apríl 2025.
Elín Mjöll Lárusdóttir tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með áorðnum breytingum dags. 4. apríl 2025 og með vísan til umsagnar skipulagsdeildar dags. 4. apríl 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
6.7 - 2410082 - Deiliskipulag. Arnarnesvegur milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar. Skipulagslýsing.
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulagslýsingu dags. 19. mars 2025 vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsgerðar tveggja vegkafla Arnarnesvegar. Annars vegar milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar og hinsvegar frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi. Vegkaflinn milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar er 1,6 km á lengd og er innan Kópavogs og Garðabæjar. Deiliskipulagið mun ná yfir veghelgunarsvæðin, stíga og gatnamót að nálægum íbúðarsvæðum. Unnið er að veghönnun beggja vegkaflanna með breytingum sem eru til þess ætlaðar að auka umferðaröryggi og um leið eru hljóðvarnir, stígatengingar og staðsetningar strætóstöðva yfirfarnar. Í dag er Arnarnesvegur á stærstum hluta þessa kafla tvíbreiður vegur með eina akrein í hvora átt með hringtorgum á gatnamótum. Verið er að skoða mögulegar útfærslur á fyrirkomulagi vegarins og gatnamóta á þessum kafla út frá hæðarlegu og afkastagetu. Markmiðið er að halda hringtorgunum í núverandi legu en breikka hringtorg Arnarnesvegar og Smárahvammsvegar í tvær akreinar. Fyrir liggur skv. aðalskipulagi Garðabæjar að gerð verður vegtenging í undirgöngum til að tengja væntanlega uppbyggingu í Arnarlandi við þegar byggt hverfi í Akralandi.
Skipulagslýsingin er unnin af Eflu fyrir Kópavogsbæ og Garðabæ í samvinnu við Vegagerðina.
Samþykkt að framlögð skipulagslýsing verði kynnt með vísan til 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
6.8 - 2501990 - Deiliskipulag. Arnarnesvegur frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi. Skipulagslýsing.
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulagslýsingu dags. 19. mars 2025 vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsgerðar tveggja vegkafla Arnarnesvegar. Annars vegar milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar og hinsvegar frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi. Vegkaflinn frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi er um 1,1 km á lengd og er alfarið innan Kópavogs. Deiliskipulagið mun ná yfir veghelgunarsvæðin, stíga og gatnamót að nálægum íbúðarsvæðum. Unnið er að veghönnun beggja vegkaflanna með breytingum sem eru til þess ætlaðar að auka umferðaröryggi og um leið eru hljóðvarnir, stígatengingar og staðsetningar strætóstöðva yfirfarnar. Á vegkaflanum frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi er verið að endurhanna gatnamót til að auka umferðaröryggi og til að bæta umferðarflæði, en í dag er vegkaflinn tvíbreiður vegur með eina akrein í hvora átt með hringtorgi og tveimur T-gatnamótum. Til skoðunar er að fækka skurðpunktum akandi umferðar og bæta við hringtorgi á gatnamótum við Salaveg.
Skipulagslýsingin er unnin af Eflu fyrir Kópavogsbæ og Garðabæ í samvinnu við Vegagerðina.
Samþykkt að framlögð skipulagslýsing verði kynnt með vísan til 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 964. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 07.02.2025.
Lagt fram.
10
Fundargerð 32. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 31.03.2025
Fundargerð 32. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 31.03.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 973. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga frá 14.03.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19.03.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.03.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 04.04.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 270. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 21.03.2025
Lagt fram.
Kosning aðalmanns og varamanns í innkaupanefnd.
Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir tekur sæti aðalmanns í innkaupanefnd og Bergljót Kristinsdóttir tekur sæti varamanns.