Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 47. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Ester Anna Ármannsdóttir.

Dagskrá fundar

01

Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Lögð fram umsókn Betri Samganga ofh. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Jafnframt lögð fram umsögn gatnadeildar dags. 27. maí 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júní 2026.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með vísan til heimilda í 4. tl. 3. gr. samþykktar um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024 að framlögð framkvæmdaleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 24, 25, 26, 27 og 33 við Súlunes.