Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Málsnúmer: 26042448

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Betri Samgangna ohf. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Umsóknin var grenndarkynnt frá 6. júní til 2. júlí 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Betri Samgangna ohf. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Umsóknin var grenndarkynnt frá 6. júní til 2. júlí 2026, athugasemdir bárust.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 47. fundur

Lögð fram umsókn Betri Samganga ofh. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Jafnframt lögð fram umsögn gatnadeildar dags. 27. maí 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júní 2026.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með vísan til heimilda í 4. tl. 3. gr. samþykktar um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024 að framlögð framkvæmdaleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 24, 25, 26, 27 og 33 við Súlunes.

04

Skipulags- og umhverfisráð - 28. fundur

Lögð fram umsókn Betri Samganga ofh. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin felur í sér að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng Hafnarfjarðarvegar við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs.

05

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 44. fundur

Lögð fram umsókn Betri Samganga ofh. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin felur í sér að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng Hafnarfjarðarvegar við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.