Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 54. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri kynnti mál á fundinum.
Dagskrá fundar
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 17 við Birkigrund dags. 23. ágúst 2026 um stækkun innkeyrslu og bílastæðis og endurnýjun malbiks.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026.
Jákvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026.
Lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Ásgeirssonar dags. 11. september 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Hamraborg hvort heimild fáist til að skrá eignarhluta 02 01 í gistiheimili.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026.
Jákvætt, með vísan til umsagnar dags. 28. september 2026.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 11. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 22 við Gulaþing er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um glerhýsi á eignarhluta 0101. Uppdrættir dags. 8. júlí 2026.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026, samþykkt. Sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 11. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Pálmars Halldórssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 34 við Borgarholtsbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að bæta við tveimur kvistum á þak, að norðan og sunnan.Við breytinguna stækkar húsið um 2,7 m². Uppdrættir dags. 25. september 2026.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. nr. 32, 33, 25 og 36 við Borgarholtsbraut og nr. 18 og 18A við Hófgerði. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 18 við Fjallalind um að reisa 15m² geymsluskúr utan byggingarreits, við vesturmörk lóðarinnar og um 1m frá gangstétt á bæjarlandi.
Frestað.
Lögð fram fyrirspurn Jakobs E. Líndal arkitekts dags. 16. september 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Hófgerði um að 30m² bílskúr verði innréttaður sem leiguhúsnæði með 2 íbúðareiningum fyrir útleigu sem gististaður án veitinga í flokki II. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2026.