Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Borgarholtsbraut 34. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 26091709

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 54. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 11. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Pálmars Halldórssonar bygg­inga­fræð­ing­s f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 34 við Borgarholtsbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að bæta við tveimur kvistum á þak, að norðan og sunnan.Við breytinguna stækkar húsið um 2,7 m². Uppdrættir dags. 25. september 2026.

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. nr. 32, 33, 25 og 36 við Borgarholtsbraut og nr. 18 og 18A við Hófgerði. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 53. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 11. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Pálmars Halldórssonar bygg­inga­fræð­ing­s f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 34 við Borgarholtsbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að bæta við tveimur kvistum á þak, að norðan og sunnan. Uppdrættir dags. 15. ágúst 2022.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.