Embættisafgreiðslur skipulagsstjóra - 1. fundur
Fannborg 6, 2.hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Guðmundur G. Gunnarsson
Dagskrá fundar
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 24. nóvember 2009 er lagt fram bréf lóðarhafa nr. 21 - 23 við Hafnarbraut dags. 2. nóvember 2009, þar sem óskað er eftir leyfi til þess að breyta innra skipulagi hússins þannig að þremur stökum herbergjum á 2. hæð verði breytt í eina studió íbúð. Íbúðum verði þannig fjölgað úr 10 í 11. Fyrir liggur umsögn byggingarfulltrúa um erindið dags. 14. október 2009.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 24. nóvember 2009 er lagt fram erindi skipulags- og umhverfissviðs dags. 17. nóvember 2009 og varðar breytt deiliskipulag lóðanna nr. 35 til 47 við Austurkór. Erindið byggir á bréfi Gerðar ehf. dags. 12. nóvember 2009, Þar sem óskað er eftir úthlutun Kópavogsbæjar á lóð fyrir einstaklingsíbúðir í samstarfi við Brynju Hússjóð. Fyrirhugað er að reisa allt að 10 lágreist raðhús. 6 á lóðinni nr. 35 - 41 við Austurkór og 4 á lóðinni nr. 43 - 47 við Austurkór.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 24. nóvember 2009 er lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits dags. 17. nóvember 2009. Erindið varðar fyrirtækjarekstur í bílskúr nr. 37 við Hjallabrekku. Kvartanir vegna ónæðis hafa borist Heilbrigðiseftirliti frá nágrönnum. Farið var á vettvang 16. nóvember sl. $line$Um er að ræða verslunarrekstur með sölu á fatnaði í bílskúrnum. ,,Eftirlitið lagði ekki mat á umsvif þessa verslunarreksturs, né heldur hvort ónæði og truflun sem af honum hlýst sé meiri en íbúar mega vænta í hefðbundinni íbúðargötu með til að gera fá bílastæði.""

Erindinu er vísað til byggingarfulltrúa.