Austurkór 35 - 47, breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 0911402
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2542. fundur

Bæjarráð samþykkir erindið.

02
Skipulagsnefnd - 1176. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er lagt fram erindi Gerðar ehf. dags. 12. nóvember 2009. Í erindinu er óskað eftir að koma fyrir 9 íbúðum á lóðinni. Vísað er til skipulagsskilmála og deiliskipulags Rjúpnahæðar - austurhluta, sem samþykkt var í bæjarráði Kópavogs 7. september 2006. $line$Í breytingunni felst að reistar verði 9 íbúðir í tveimur raðhúsum á einni hæð. Hámarks grunnflötur breytist úr 132 m² í 124 m² fyrir enda raðhús og 132 m² í 106 m² fyrir miðju hús. Hámarks hæð húsa er 4,8 metrar. Ekki er gert ráð fyrir innbyggðri bílageymslu. Lóðarmörk breytast og fjöldi bílastæða á hverri lóð verða tvö í stað þriggja.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að senda erindið í kynningu tíl lóðarhafa Austurkór 33, 49 og 51. Almannakór 1, 2, 3, 4, 5 og 6. Arakór 1, 2, 3, 4, 5 og 6. Auðnukór 1, 2, 3, 4, 5 og 6. Akrakór 1, 3, 5 og 7.$line$Kynning fór fram 4. febrúar til 9. mars 2010. Engar athugasmedir bárust.$line$Á fundi skipulagsnefndar 16. mars 2010 er erindið lagt frá á ný.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

03
Embættisafgreiðslur skipulagsstjóra - 1. fundur
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 24. nóvember 2009 er lagt fram erindi skipulags- og umhverfissviðs dags. 17. nóvember 2009 og varðar breytt deiliskipulag lóðanna nr. 35 til 47 við Austurkór. Erindið byggir á bréfi Gerðar ehf. dags. 12. nóvember 2009, Þar sem óskað er eftir úthlutun Kópavogsbæjar á lóð fyrir einstaklingsíbúðir í samstarfi við Brynju Hússjóð. Fyrirhugað er að reisa allt að 10 lágreist raðhús. 6 á lóðinni nr. 35 - 41 við Austurkór og 4 á lóðinni nr. 43 - 47 við Austurkór.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.