Til baka í nefndaryfirlit
Félagsmálaráð - 1421. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnsteinn Sigurðsson - formaður
- Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
- Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
- Arnþór Sigurðsson - aðalmaðurBoðaði forföllArnþór Sigurðsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Atli Sturluson - yfirmaður rekstrardeildar
Starfsmenn
- Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
- Anna Klara Georgsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Anna Klara Georgsdóttir
Dagskrá fundar
Farið var yfir áherslur velferðarsviðs við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2017.
Félagsmálaráð telur, m.t.t. stefnumótunarhlutverks síns, mikilvægt að horfa til styrkingar í barnavernd, fjölgunar tíma sem veittir eru í frekari liðveislu, áframhaldandi stuðnings við atvinnulausa Kópavogsbúa og uppbyggingar búsetuúrræða fyrir fólk með fjölþættan vanda.
Bókunin var samþykkt af öllum fundarmönnum.
Sviðsstjóra var falið að óska eftir samstarfi við fulltrúa Hafnarfjarðar og Garðabæjar um mögulega samræmingu á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.