Sérstakur húsnæðisstuðningur
Málsnúmer: 1610412
Ferill máls
01
Velferðarráð - 13. fundur
Lagt fram til kynningar.
02
Bæjarráð - 2879. fundur
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 4. júní, lagt fram erindi vegna reglna um sérstakan húsnæðisstuðning þar sem lagt er til að viðmiðunarstuðull verði hækkaður við útreikning bóta.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.
03
Velferðarráð - 11. fundur
Upplýst var um áhrif breytinga á reglum sem samþykktar voru í velferðarráði 24. apríl sl. Auglýst hefur verið að breytingar hafi orðið á kerfinu og enn er reynt að ná til þeirra íbúa sem eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi en hafa ekki sótt hann.
04
Bæjarstjórn - 1157. fundur
Lagt fram til upplýsingar
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fella út 5. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.
05
Bæjarráð - 2868. fundur
Lagt fram til upplýsingar
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að fella út 5. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðning og vísar málinu til bæjarstjórnar.
06
Bæjarráð - 2868. fundur
Lagt fram til upplýsingar
Bæjarráð samþykkir ... og vísar málinu til bæjarstjórnar.
07
Bæjarráð - 2868. fundur
Lagt fram til upplýsingar
Bæjarráð samþykkir fyrri sitt leyti að fella út 5. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðning og vísar málinu til bæjarstjórnar.
08
Velferðarráð - 8. fundur
Lagt fram til upplýsingar
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að fella út 5. grein reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.
09
Bæjarstjórn - 1149. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinagerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning til leigenda á almennum markaði voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning með 11 atkvæðum.
10
Velferðarráð - 1. fundur
Lagðar voru fram tillögur að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Velferðarráð samþykkti breytingarnar fyrir sitt leyti og lagði áherslu á að staðan verði endurmetin eftir fimm mánuði.
Atli Sturluson rekstrarstjóri og Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.
11
Bæjarráð - 2851. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinagerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning til leigenda á almennum markaði voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
12
Bæjarstjórn - 1148. fundur
Frá rekstrarstjóra velferðarsviðs og lögfræðideild, dags. 6. desember, lögð fram til samþykktar drög að reglum um sérstakan hússnæðisstuðning. Félagsmálaráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti á fundi þann 5. desember sl. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlögð drög að reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
13
Bæjarráð - 2849. fundur
Frá rekstrarstjóra velferðarsviðis og lögfræðideild, dags. 6. desember, lögð fram til samþykktar drög að reglum um sérstakan hússnæðisstuðning. Félagsmálaráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti á fundi þann 5. desember sl.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
14
Félagsmálaráð - 1423. fundur
Ása Arnfríður Kristjánsdóttir lögfræðingur og Atli Sturluson deildarstjóri kynntu drög að reglum Kópavogsbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Félagsmálaráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti.
15
Félagsmálaráð - 1421. fundur
Sviðsstjóra var falið að óska eftir samstarfi við fulltrúa Hafnarfjarðar og Garðabæjar um mögulega samræmingu á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.