Félagsmálaráð - 1404. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Anna Klara Georgsdóttir - verkefnastjóri
- Gunnsteinn Sigurðsson - formaður
- Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
- Rannveig Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Vilhjálmur Einarsson - aðalfulltrúi
- Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
- Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Anna Klara Georgsdóttir
Dagskrá fundar
Staða mála og nýjungar í þjónustu- og ráðgjafardeild aldraðra
Svanhildur Þengilsdóttir deildarstjóri og Harpa Ýr Erlendsdóttir iðjuþjálfi kynntu.
Lagt fram.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
123. úthlutunarfundur og greinargerð
Lagt fram.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Fært í trúnaðarbók.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Meirihluti félagsmálaráðs samþykkti fyrir sitt leyti að hækka einingarverð NPA og beingreiðslu samninga um 10% til samræmis við það sem kveðið er á um í kjarasamningum.$line$$line$Arnþór Sigurðsson og Kristín Sævarsdóttir sátu hjá við afgreiðslu erindisins og bókuðu eftirfarandi: "Rétt er að benda á að ef félagsmálaráð tekur ákvörðun um hækkun á NPA og beingreiðslusamningum verða þeir fjármunir teknir af annarri þjónustu þar sem fjárhagsrammi ársins er þegar ákveðinn. Eðlilegt er að ákvörðun um hækkun á NPA og beingreiðslusamningum sé í höndum bæjarráðs en ekki félagsmálaráðs. Aukið fjármagn til málaflokksins þarf að fylgja slíkum ákvörðunum." $line$$line$Ólöf Pálína Úlfarsdóttir bókaði: "Ég legg áherslu á að þjónustustundum við notendur verði ekki fækkað við hækkunina".$line$$line$Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri og Atli Sturluson rekstrarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað.