Beint í efni
Til baka í fundargerðir

NPA samningar - einingarverð

Málsnúmer: 1310526

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2972. fundur

Frá deildarstóra þjónustu- og ráðgjafadeildar fatlaðra, dags. 19. september, lögð fram tillaga að hækkun á einingaverði NPA samninga ásamt greinargerð og þar til gerðum fylgiskjölum. Velferðarráð samþykkti tillögu að hækkun einingaverðs NPA samninga fyrir sitt leyti á fundi sínum þann 23. september og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar á fundi sínum þann 26. september.

Bæjarráð samþykkir með fjórum samhljóða atkvæðum framlagða tillögu um hækkun á einingarverði NPA samninga. Bergljót Kristinsdóttir greiddi ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2971. fundur

Greinargerð deildarstjóra dags. 19. september 2019, ásamt þar til gerðum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Frestað til næsta fundar.

03

Velferðarráð - 50. fundur

Greinargerð deildarstjóra dags. 19. september 2019, ásamt þar til gerðum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti tillögu að hækkun einingaverðs NPA samninga fyrir sitt leyti og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs.

04

Bæjarstjórn - 1192. fundur

Lagt fram til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með 11 atkvæðum.

05

Bæjarráð - 2948. fundur

Lagt fram til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á einingaverðum vegna NPA-samninga.

06

Velferðarráð - 41. fundur

Lagt fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti framlagða tillögu um breytingu á einingaverðum fyrir sitt leyti.

07

Bæjarráð - 2819. fundur

Frá deildarstjóra þjónustudeildar fatlaðra, dags. 2. febrúar, lögð fram tillaga um hækkun á einingaverði NPA og beingreiðslusamninga. Lagt er til að einingaverði NPA og beingreiðslusamninga taki breytingum í samræmi við launaþróun, þar sem annars verði ósamræmi í samþykktum tímum þjónustu og nýttum tímum þjónustuþega. Félagsmálaráð samþykkti tillöguna á fundi 1. febrúar sl. og vísaði málinu til bæjarráðs. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi þann 4. febrúar sl.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um hækkun á einingaverði NPA og beingreiðslusamninga, enda rúmist kostnaður innan fjárhagsáætlunar velferðarmála.$line$$line$Fulltrúar minnihluta taka undir bókanir fulltrúa minnihluta í félagsmálaráði.

08

Bæjarráð - 2807. fundur

Á fundi félagsmálaráðs Kópavogs, 1. febrúar sl. var lögð fram og samþykkt tillaga um hækkun á einingarverði NPA og beingreiðslusamninga. $line$Í erindi rekstrarstjóra er lagt til að einingaverð í NPA og beingreiðslusamningum taki breytingum í samræmi við launaþróun, þar sem annars verði ósamræmi í samþykktum tímum þjónustu og nýttum tímum þjónustuþega.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

09

Félagsmálaráð - 1404. fundur

Meirihluti félagsmálaráðs samþykkti fyrir sitt leyti að hækka einingarverð NPA og beingreiðslu samninga um 10% til samræmis við það sem kveðið er á um í kjarasamningum.$line$$line$Arnþór Sigurðsson og Kristín Sævarsdóttir sátu hjá við afgreiðslu erindisins og bókuðu eftirfarandi: "Rétt er að benda á að ef félagsmálaráð tekur ákvörðun um hækkun á NPA og beingreiðslusamningum verða þeir fjármunir teknir af annarri þjónustu þar sem fjárhagsrammi ársins er þegar ákveðinn. Eðlilegt er að ákvörðun um hækkun á NPA og beingreiðslusamningum sé í höndum bæjarráðs en ekki félagsmálaráðs. Aukið fjármagn til málaflokksins þarf að fylgja slíkum ákvörðunum." $line$$line$Ólöf Pálína Úlfarsdóttir bókaði: "Ég legg áherslu á að þjónustustundum við notendur verði ekki fækkað við hækkunina".$line$$line$Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri og Atli Sturluson rekstrarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

10

Félagsmálaráð - 1403. fundur

Til upplýsingar og umræðu

Atli Sturluson rekstrarstjóri og Guðlaug Ósk deildarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

11

Félagsmálaráð - 1384. fundur

Samþykkt var að hækka einingaverð NPA samninga frá og með 1. febrúar 2015.$line$Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

12

Félagsmálaráð - 1382. fundur

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.$line$Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

13

Félagsmálaráð - 1360. fundur

Félagsmálaráð frestar málinu. Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.