Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Félagsmálaráð - 1336. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Kjartan Sigurgeirsson - varaformaður
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
  • Ásdís Helga Jóhannesdóttir - aðalfulltrúi
  • Helga Guðrún Jónasdóttir - aðalfulltrúi
  • Arnþór Sigurðsson - varafulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - varafulltrúi
  • Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Teymisfundir 2012

Lagt fram. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

02

Áfrýjun. Fjárhagsaðstoð

Skráð í trúnaðarbók. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

03

Áfrýjun. Húsaleigubætur

Skráð í trúnaðarbók.

04

Einstaklingsmál. Búseta og þjónusta

Skráð í trúnaðarbók. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið. Arnþór vék af fundi.

05

Tilraunaverkefni um NPA

Félagsmálaráð samþykkir þátttöku í tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

06

Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) fyrir fatlað fólk

Félagsmálaráð samþykkir breytingar á reglum um NPA fyrir sitt leiti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

07

Samningur um NPA. Samningsform

Samþykkt með framkomnum breytingum. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

08

Þjónustusamningar. Endurnýjun

Félagsmálaráð mælist til að notendum þjónustusamninga verði boðið að gera NPA samninga. Þá ákveður félagsmálaráð að um þjónustusamninga skuli gilda eftirlit með ráðstöfum fjármagns eins og kveðið er á um í reglum um NPA. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið. Guðríður vék af fundi.

09

Launakjör í Dimmuhvarfi

Sverrir óskaði eftir upplýsingum um breytingar á launakjörum almennra starfsmanna í Dimmuhvarfi. Félagsmálastjóri upplýsti að komið hefur verið tímabundið til móts við launalækkanir.

10

Starfsendurhæfing

Fyrirspurn frá Sverri varðandi mögulegt samstarf við Virk starfsendurhæfingu um eflingu starfsendurhæfingar í Kópavogi.