Þjónustusamningar. Endurnýjun
Málsnúmer: 1203241
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1336. fundur
Félagsmálaráð mælist til að notendum þjónustusamninga verði boðið að gera NPA samninga. Þá ákveður félagsmálaráð að um þjónustusamninga skuli gilda eftirlit með ráðstöfum fjármagns eins og kveðið er á um í reglum um NPA. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið. Guðríður vék af fundi.
02
Félagsmálaráð - 1328. fundur
Samþykkt að framlengja samninga um fjóra mánuði til 1. september n.k. enda liggi fyrir þann tíma sundurliðað yfirlit launagreiðslna og annars kostnaðar eins og fram kemur í greinargerð yfirmanns dags. 12. apríl 2012. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri þjónustudeildar fatlaðra sátu fundinn undir þessum lið. Helga Guðrún vék af fundi.
03
Félagsmálaráð - 1326. fundur
Lagt fram. Félagsmálaráð ákveður að stofna vinnuhóp sem skipaður er tveimur fulltrúum ráðsins úr minni og meirihluta og starfsmönnum til að yfirfara reglur og útfærslu í samningum. Jafnframt ákveður félagsmálaráð að framlengja núgildandi þjónustusamninga óbreytta um einn mánuð. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.