Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forsætisnefnd - 87. fundur

á Digranesvegi 1, Bæjarráðsherbergi - Drangey

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Sverrir Óskarsson - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Starfsumhverfi bæjarfulltrúa og valdmörk nefnda

Tillaga

Forsætisnefnd leggur til að frá 1. mars 2017 muni starfskjör bæjarfulltrúa taka breytingum í samræmi við launavísitölu, sem uppfærist í janúar og júlí ár hvert.

Greinargerð: Á 2847. fundi bæjarráðs var málinu vísað til Forsætisnefndar til úrvinnslu. Tillaga nefndarinnar gerir ráð fyrir því að tenging við þingfararkaup verði afnumin og þess í stað verði tekin upp tenging við launavísitölu, og miðað við launavísitölu frá 1. júlí 2006. Er það mat Forsætisnefndar að með því sé verið að endurspegla betur en áður almenna launaþróun í landinu.