Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forsætisnefnd - 254. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - 1. varaforseti
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - 2. varaforseti
  • Björg Baldursdóttir - forseti

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir - embættismaður

Ritari

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 12. maí 2026.

I. Dagskrármál.

II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.

III. Kosningar.

02

Mál sett á dagskrá forsætisnefndar að beiðni Theódóru S. Þorsteinsdóttur bæjarfultrúa

Lagt fram erindi frá bæjarfulltrúa Viðreisnar vegna bæjarstjórnarfundar 28. apríl 2026, þar sem fulltrúinn bókaði eftirfarandi undir máli nr. 4.1:

"Undirrituð frábiður sér að bæjarstjóri geri henni upp skoðanir og ásetning í þessu máli, og væntir þess að forseti áminni bæjarstjóra. Siðareglur kveða á um að bæjarfulltrúar skuli sýna háttvísi og bera virðingu fyrir skoðunum annarra."

Umræður.

Forseta falið að árétta siðareglur á fundi bæjarstjórnar.

03

Mál sett á dagskrá forsætisnefndar að beiðni Kolbeins Reginssonar bæjarfultrúa um samræmi í störfum forsætisnefndar.

Lagt fram erindi frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs um að samræmis sé gætt í störfum forsætisnefndar, hvað athugasemdir við störf einstakra bæjarfulltrúa varðar.

Kl.15:30 víkur Elísabet Berglind Sveinsdóttir af fundi vegna vanhæfis.

Umræður.

Frá því það mál sem bæjarfulltrúinn Kolbeins Reginsson bendir á sem fordæmi var tekið fyrir hjá forsætisnefnd hefur nefndin afgreitt tvö mál með vísan til minnisblaðs lögfræðiþjónustu, dags. 04.03.2026. Í þeim málum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að þau féllu utan valdsviðs nefndarinnar og vísaði málunum frá. Það mál sem hér er til skoðunar fellur einnig utan valdsviðs nefndarinnar á sömu forsendum og vísar nefndin því einnig frá.