Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Mál sett á dagskrá forsætisnefndar að beiðni Kolbeins Reginssonar bæjarfultrúa um samræmi í störfum forsætisnefndar.

Málsnúmer: 2605276

Ferill máls

01

Forsætisnefnd - 254. fundur

Lagt fram erindi frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs um að samræmis sé gætt í störfum forsætisnefndar, hvað athugasemdir við störf einstakra bæjarfulltrúa varðar.

Kl.15:30 víkur Elísabet Berglind Sveinsdóttir af fundi vegna vanhæfis.

Umræður.

Frá því það mál sem bæjarfulltrúinn Kolbeins Reginsson bendir á sem fordæmi var tekið fyrir hjá forsætisnefnd hefur nefndin afgreitt tvö mál með vísan til minnisblaðs lögfræðiþjónustu, dags. 04.03.2026. Í þeim málum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að þau féllu utan valdsviðs nefndarinnar og vísaði málunum frá. Það mál sem hér er til skoðunar fellur einnig utan valdsviðs nefndarinnar á sömu forsendum og vísar nefndin því einnig frá.