Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forsætisnefnd - 136. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Tillaga um að Kópavogsbær taki yfir heimahjúkrun aldraðra.

II. Fundargerðir nefnda - önnur mál.

III. Kosningar.

02

Ólögmæt takmörkun á aðgengi að upplýsingum, krafa um úrbætur

Tillaga frá bæjarritara um aðgengi 1. varabæjarfulltrúa hvers framboðs að gögnum.

Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að fyrsti varafulltrúi hvers framboðs sem fulltrúa á í bæjarstjórn Kópavogs skuli hafa aðgengi að gögnum sem fylgja fundargerðum nefnda sem lagðar eru fram á fundum bæjarstjórnar. Um aðgang að gögnum gilda ákvæði 4. mgr. 28. gr. sveitarstjórnarlaga um trúnað.

03

Reglur um afnot af bæjarstjórnarsal

Lögð fram drög að reglum um afnot af bæjarstjórnarsal að Hábraut 2.

Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum reglur um afnot af bæjarstjórnarsal.