Ólögmæt takmörkun á aðgengi að upplýsingum, krafa um úrbætur
Málsnúmer: 1812401
Ferill máls
01
Forsætisnefnd - 136. fundur
Tillaga frá bæjarritara um aðgengi 1. varabæjarfulltrúa hvers framboðs að gögnum.
Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að fyrsti varafulltrúi hvers framboðs sem fulltrúa á í bæjarstjórn Kópavogs skuli hafa aðgengi að gögnum sem fylgja fundargerðum nefnda sem lagðar eru fram á fundum bæjarstjórnar. Um aðgang að gögnum gilda ákvæði 4. mgr. 28. gr. sveitarstjórnarlaga um trúnað.
02
Forsætisnefnd - 135. fundur
Erindi Jóns Finnbogasonar frá 6. febrúar sl. varðandi aðgengi varabæjarfulltrúa að gögnum. Bæjarlögmaður skilaði umsögn í málinu sem var lögð fram á fundi forsætisnefndar þann 7. febrúar sl. sem frestaði afgreiðslu málsins.
Forsætisnefnd óskar eftir tillögu frá bæjarritara um aðgengi 1. varabæjarfulltrúa hvers framboðs að gögnum.
03
Forsætisnefnd - 133. fundur
Frá bæjarlögmanni, umsögn um erindi Jóns Finnbogasonar varðandi aðgengi varabæjarfulltrúa að gögnum, dagsett 6. febrúar. Erindið var lagt fyrir forsætisnefnd 6. desember sl. og vísað til umsagnar bæjarritara.
Umsögnin var lögð fram á fundi forsætisnefndar þann 7. febrúar sl. en afgreiðslu var frestað.
Lagt fram.
04
Forsætisnefnd - 132. fundur
Frá bæjarlögmanni, umsögn um erindi Jóns Finnbogasonar varðandi aðgengi varabæjarfulltrúa að gögnum, dagsett 6. febrúar. Erindið var lagt fyrir forsætisnefnd 6. desember sl. og vísað til umsagnar bæjarritara.
Lagt fram.
Forsætisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.
05
Forsætisnefnd - 128. fundur
Frá Jóni Finnbogasyni varabæjarfulltrúa, dags. 3. desember, þar sem óskað er eftir aðgengi að gögnum bæjarstjórnar vegna setu á fundum bæjarstjórnar.
Forsætisnefnd vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.