Forsætisnefnd - 146. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMargrét Friðriksdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Másson
Dagskrá fundar
I. Fjárhagsáætlun 2020 - seinni umræða.
II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.
III. Kosningar.
02
Óskað eftir umræðu um 32. gr. sveitarstjórnarlaga m.t.t. lífeyrisréttinda kjörinna fulltrúa. Tillaga frá Karen Elísabetu Halldórsdóttur
Óskað er eftir að forsætisnefnd taka til skoðunar 32. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 sem heimilar sveitarstjórnum að setja nánari reglur um réttindi sveitarstjórnarmanna, s.s. varðandi lífeyrissjóði, fæðingarorlof og biðlaun. Skoðað verði sérstaklega afhverju Kópavogur greiðir ekki mótframlög vegna séreignasparnaðar kjörinna fulltrúa, ástæður hvers vegna það sé ekki gert og hvernig sé staðið að þessum málum í nágrannasveitarfélögum. Einnig mætti skoða önnur réttindi í þessu samhengi.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.
Óskað er eftir umræðu um tilgang og aðkomu Hafnarstjórnar að málum, t.d. í hvaða tilfellum rétt sé að vísa erindum til nefndarinnar.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.
04
Fyrirspurn um fundargerð ritaða á fundi með íbúum Bakkabrautar þar sem ákvarðanir voru teknar um að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Frá Guðmundi Geirdal
Fyrirspurn um fundargerð ritaða á fundi með íbúum Bakkabrautar þar sem ákvarðanir voru teknar um að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.