Óskað eftir umræðu um 32. gr. sveitarstjórnarlaga m.t.t. lífeyrisréttinda kjörinna fulltrúa. Tillaga frá Karenu Elísabetu Halldórsdóttur
Málsnúmer: 1911566
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2987. fundur
Forsætisnefnd leggur til að kjörnum fulltrúum og nefndarmönnum bæjarins verði gert kleift að greiða í séreignasjóð vegna setu sinnar í nefndum og ráðum á vegum Kópavogsbæjar og vísar málinu til frekari afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn. Til skoðunar var 32. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 sem heimilar sveitarstjórnum að setja nánari reglur um réttindi sveitarstjórnarmanna, s.s. varðandi lífeyrissjóði, fæðingarorlof og biðlaun, þar sem skoðað var m.a. hvers vegna Kópavogur greiðir ekki mótframlög vegna séreignasparnaðar kjörinna fulltrúa. Á fundi forsætisnefndar þann 23. janúar var einnig lagt fram yfirlit yfir mögulegan kostnað vegna séreignasparnaðar bæjarfulltrúa og nefndarmanna.
Samþykkt að vísa erindinu til fjármálastjóra til úrvinnslu.
02
Forsætisnefnd - 149. fundur
Lagt fram yfirlit yfir mögulegan kostnað vegna séreignasparnaðar bæjarfulltrúa og nefndarmanna.
Forsætisnefnd leggur til að kjörnum fulltrúum og nefndarmönnum bæjarins verði gert kleift að greiða í séreignasjóð vegna setu sinnar í nefndum og ráðum á vegum Kópavogsbæjar.
Forsætisnefnd vísar málinu til frekari afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.
03
Forsætisnefnd - 146. fundur
Óskað er eftir að forsætisnefnd taka til skoðunar 32. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 sem heimilar sveitarstjórnum að setja nánari reglur um réttindi sveitarstjórnarmanna, s.s. varðandi lífeyrissjóði, fæðingarorlof og biðlaun. Skoðað verði sérstaklega afhverju Kópavogur greiðir ekki mótframlög vegna séreignasparnaðar kjörinna fulltrúa, ástæður hvers vegna það sé ekki gert og hvernig sé staðið að þessum málum í nágrannasveitarfélögum. Einnig mætti skoða önnur réttindi í þessu samhengi.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.