Framkvæmdaráð - 25. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Steingrímur Hauksson - embættismaður
- Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Sigurjón Ingvason - embættismaður
Ritari
- Sigurjón Ingvason
Dagskrá fundar
Frá garðyrkjustjóra. Tillögur um vinnutíma og laun.
Samþykkt með þeirri breytingu að 14 ára fái 69 vinnustundir í stað 60. Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Frá menntasviði. Tillögur um fjölda sumarstarfsmanna og kostnað.
Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.Frestað.Garðyrkjustjóri, deildarstjóri íþróttadeildar og deildarstjóri frístunda- og forvarnadeildar sátu fundinn undir þessum lið.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, tillaga um breytingar á gjaldskrá. Frá fjármála- og hagsýslustjóra tillaga um breytingu á greiðsluskilmálum.
<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><SPAN style="FONT-FAMILY: " Calibri?,?sans-serif?; COLOR: black?><FONT size=3>Guðríður Arnardóttir óskar bókað: "Áður en nokkur ákvörðun er tekin varðandi breytingar á lóðagjöldum óska ég lögfræðiálits á því hvort fyrirliggjandi lækkun geti mögulega orðið til þess að lóðarhafar í Kópavogi sem hafa þegar fengið úthlutað lóðum og jafnvel hafið framkvæmdir geti sótt samsvarandi afslátt til bæjarins á grundvelli jafnræðissjónarmiða."</FONT></SPAN></P>Tillögu um breytingu á gjaldskrá vísað til bæjarráðs til afgreiðslu, ásamt lögfræðiáliti. Guðríður Arnardóttir fer fram á, með vísan til bæjarmálasamþykktar, að afgreiðslu á tillögu um breytingu á greiðsluskilmálum verði frestað. Afgreiðslu á tillögu um breytingu á greiðsluskilmálum er frestað til næsta fundar.
Kostnaðaráætlun lögð fram til umræðu.
Sviðsstjóra umhverfissviðs falið að gera frekari kostnaðaráætlanir varðandi hjúkrunarheimili. Sviðstjóra umhverfissviðs og formanni framkvæmdaráðs falið að ræða við fulltrúa hagsmunasamtaka fatlaðs fólks um uppbyggingu þjónustuíbúða fyrir fatlaða.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 9:25
Viðræður við Vegagerðina og athugasemdir við samgönguáætlun.
Formaður framkvæmdaráðs greindi frá fundi með Vegagerð.
Frá sviðstjóra umhverfissviðs. Yfirlit yfir óbyggðar lóðir.
Lagt fram.
Ólafur Þór Gunnarsson vék af fundi kl. 9:45
Tillaga að umferðarskipulagi og umræða um hana á fundi umferðar- og samgöngunefndar.
Sviðstjóra umhverfissviðs og formanni framkvæmdaráðs falið að funda með fulltrúum lögreglunnar.