Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um breytingu á greiðsluskilmálum lóðagjalda

Málsnúmer: 1203056

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1055. fundur

Tillaga að breytingu á greiðsluskilmálum lóðagjalda, sem samþykkt var í framkvæmdaráði, sbr. meðf. bókun í fundargerð ráðsins frá 21/3 og bókun í bæjarráði þar sem tillögunni er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með sex samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

02

Bæjarráð - 2635. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, tillaga um breytingu á greiðsluskilmálum lóðagjalda, samþykkt með þeirri viðbót að ef lóðarhafar óska eftir skemmri lánstíma en fimm ár verði bréf með Reibor vöxtum plús 2,2%, sbr. lið 15 í fundargerð framkvæmdaráðs 21/3.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Framkvæmdaráð - 26. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra. Tillaga um breytingu á greiðsluskilmálum lóðagjalda. Frestað á síðasta fundi.

Samþykkt með tveimur atkvæðum með þeirri viðbót að ef lóðarhafar óska eftir skemmri lánstíma en fimm ár verði bréf með Reibor vöxtum plús 2,2 %. Einn sat hjá.

04

Bæjarstjórn - 1054. fundur

Tillaga að breytingu á lóðagjöldum, ásamt lögfræðiáliti sem óskað var eftir í framkvæmdaráði, sbr. bókanir í fundargerð bæjarráðs 8/3, lið 6 og lið 30.

Hlé var gert á fundi kl. 20:14. Fundi var fram haldið kl. 20:15. Bæjarstjórn samþykkir tillögu um breytingu á gjaldskrá með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

05

Bæjarráð - 2633. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 7/3, tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir lóðagjöld, en málinu var frestað á fundi framkvæmdaráðs 7/3, sbr. lið 3 í fundargerð.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

06

Bæjarráð - 2633. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs,dags. 7. mars.

Lagt fram.

07

Framkvæmdaráð - 25. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, tillaga um breytingar á gjaldskrá. Frá fjármála- og hagsýslustjóra tillaga um breytingu á greiðsluskilmálum.

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><SPAN style="FONT-FAMILY: " Calibri?,?sans-serif?; COLOR: black?><FONT size=3>Guðríður Arnardóttir óskar bókað: "Áður en nokkur ákvörðun er tekin varðandi breytingar á lóðagjöldum óska ég lögfræðiálits á því hvort fyrirliggjandi lækkun geti mögulega orðið til þess að lóðarhafar í Kópavogi sem hafa þegar fengið úthlutað lóðum og jafnvel hafið framkvæmdir geti sótt samsvarandi afslátt til bæjarins á grundvelli jafnræðissjónarmiða."</FONT></SPAN></P>Tillögu um breytingu á gjaldskrá vísað til bæjarráðs til afgreiðslu, ásamt lögfræðiáliti. Guðríður Arnardóttir fer fram á, með vísan til bæjarmálasamþykktar, að afgreiðslu á tillögu um breytingu á greiðsluskilmálum verði frestað. Afgreiðslu á tillögu um breytingu á greiðsluskilmálum er frestað til næsta fundar.