Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Framkvæmdaráð - 59. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Alexander Arnarson - varafulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari
  • Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
  • Gísli Norðdahl - byggingarfulltrúi
  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
  • Guðmundur Guðbjart Gunnarsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Guðmundur Gunnarsson

Dagskrá fundar

01

Vatnsendahlíð, úthlutun lóða Vallaþingi.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Bæjarlögmaður gerði grein fyrir stöðu málsins.Frestað.

02

Umsókn um lóð, bílaþvottastöð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Borist hefur erindi Bónax ehf. dags. 6. desember 2013, þar sem þess er óskað að fyrirtækinu verði úthlutað lóð fyrir starfsemina. Framkvæmdaráð telur að ekki sé til staðar lóð skv. aðalskipulagi, sem geti hentað fyrir starfsemi af þessu tagi, sbr. lýsingu í erindi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

03

Staða byggingarframkvæmda á lóðum

Frá byggingarfulltrúa.

Byggingarfulltrúi lagði fram og skýrði greinargerð um stöðu byggingarframkvæmda á lóðum dags. 16. desember 2013.Framkvæmdaráð samþykkir að fela sviðsstjóra og byggingarfulltrúa að leggja fram á næsta fundi lista yfir lóðarhafa sem ekki hafa sinnt byggingarframkvæmdum um árabil, vegna mögulegra dagsekta og/eða afturköllunar lóðaúthlutana.

04

Útboð á húsnæði undir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.

Lagt fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 16. desember 2013, þar sem þess er óskað að heimilt verði að bjóða út húsnæði undir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum. Framkvæmdaráð heimilar útboðið.

05

Atvinnuátak Skógræktarfélags Kóp.2013

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.

Lögð fram greinargerð vegna atvinnuátaks Skógræktarfélags Kópavogs árið 2013.