Framkvæmdaráð - 26. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Steingrímur Hauksson - embættismaður
- Sigurjón Ingvason - embættismaður
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Hafsteinn Karlsson - varafulltrúi
Ritari
- Sigurjón Ingvason
Dagskrá fundar
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Raftækjasölunni ehf. og Lindar ehf. verði úthlutað lóðunum Austurkór 133-141.
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.
Framkvæmdaráð hafnar erindinu.
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Jóhanni G. Möller og Guðrúnu Drífu Hólmgeirsdóttur verði úthlutað lóðinni Örvasalir 16.
Frá deildarstjóra fasteignadeildar. Óskað eftir heimild til útboðs.
Samþykkt.
Eftirfarandi var bókað á fundi menningar- og þróunarráðs 7.3.2012:$line$1104009 - Öryggismál í safnahúsi.Greint frá öryggismálum í safnahúsinu á menningartorfunni.$line$Ráðið beinir því til framkvæmdaráðs bæjarins að leita lausna á öryggismálum í safnahúsinu.$line$Hjálmar Hjálmarsson leggur fram eftirfarandi fyrirspurn: Hver er kostnaður við öryggisgæslu á menningarstofnunum?$line$$line$Lagt er fram minnisblað deildarstjóra eignadeildar um aðgerðir í öryggismálum.
Samþykkt.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, vegna óska um fjölgun bílastæða við safnahús.
Sviðsstjóra falið að ganga þannig frá málum að planið við vesturhlið safnahúss verði ekki notað sem stæði nema fyrir fatlaða og vörumóttöku.
Frá garðyrkjustjóra. Tillaga um verkefni 2012.
Framkvæmdaráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til umhverfis- og samgönguráðs.
Frá garðyrkjustjóra. Óskað eftir heimild til útboðs.
Samþykkt.
Frá garðyrkjustjóra.$line$Þriðjudaginn 20. mars 2012 var opnuð verðfyrirspurn á vegum garðyrkjustjóra Kópavogs. Um var að ræða vinnu garðyrkjumanna, aðallega við trjáklippingar, gróðurflutninga og gróðursetningar.$line$$line$13 garðyrkjufyrirtæki fengu send gögn í síðustu viku. Eftirfarandi barst:$line$$line$Bára Guðjónsdóttir ehf. 5.111.000 kr. 90,3%$line$Borgargarðar ehf. 4.770.000 kr. 84,3%$line$Stjörnugarðar ehf. (Dax-verk) 5.617.500 kr. 99,2%$line$Draumagarðar ehf. 4.008.370 kr 70,8%$line$G.A.P. sf. 4.996.000 kr. 88,3%$line$Gallerí Garður ehf. 2.585.300 kr. ógilt, aðeins gefið verð í hluta þess sem beðið var um$line$Garðmenn ehf. 5.733.300 kr. 101,3%$line$Garðvélar ehf. 5.339.000 kr. 94,3%$line$Grásteinn ehf. 7.465.000 kr. 131,9%$line$Gróinn ehf. 4.462.060 kr. 78,8%$line$Lóðalausnir ehf. 6.438.000 kr. 113,7%$line$$line$Kostnaðaráætlun 5.661.000kr. 100,0%$line$$line$$line$Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðandi, Draumagarða ehf.$line$
Samþykkt.
Tillaga um að leigja Gagnaveitunni húsnæði undir fjarskiptabúnað.
Samþykkt.
Frá deildarstjóra eignadeildar. Tillaga um nýtt húsnæði fyrir AA samtökin.
Samþykkt.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Starfslýsingar. Tillaga um að auglýsa störf.
Framkvæmdaráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Frá deildarstjóra eignadeildar. Tillaga.
Samþykkt að auglýsa eftir íbúðum.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Óskað eftir heimild til forvals vegna útboðs á byggingu leikskóla á Rjúpnahæð.
Framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti að fela sviðsstjóra að vinna áfram að gerð útboðsgagna og auglýsa forval.
Frá fjármála- og hagsýslustjóra. Tillaga um breytingu á greiðsluskilmálum lóðagjalda. Frestað á síðasta fundi.
Samþykkt með tveimur atkvæðum með þeirri viðbót að ef lóðarhafar óska eftir skemmri lánstíma en fimm ár verði bréf með Reibor vöxtum plús 2,2 %. Einn sat hjá.
Frá húsverði bæjarskrifstofa og fjármála- og hagsýslustjóra. Mat á tilboðum í bifreiðar fyrir Kópavogsbæ.
Fjármálastjóra falið að leita hagstæðustu kjara.