Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Hafnarstjórn - 78. fundur

að Bakkabraut 9

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ingibjörg Hinriksdóttir - formaður
  • Brynjar Örn Gunnarsson - aðalmaður
  • Gísli Steinar Skarphéðinsson - aðalmaður
  • Jón Daði Ólafsson - aðalmaður
  • Evert Kristinn Evertsson - aðalmaður
  • Júlíus Skúlason - starfsmaður nefndar
  • Guðrún Pálsdóttir - bæjarstjóri

Ritari

  • Guðrún Pálsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Umgengni á atvinnusvæðum Kársnesi.

Formaður fór yfir minnisblað umhverfissviðs frá 16. 06. 2011.

Hafnarstjórn beinir þeim tilmælum til byggingarfulltrúa að hann fylgi eftir hreinsunarátaki 2011 og beiti tiltækum ráðum, svo sem dagsektum, til að ná fram bættri umgengni á svæðinu.

Almenn mál

02

Gjaldskrá Kópavogshafnar 2012

Formaður fór yfir gjaldskrá Kópavogshafna, lagði til hækkun á gjaldskrám og breytingar á einstökum greinum gjaldskrárinnar, einnig að 14. gr. og 19. gr. núgildandi gjaldskrár falli út.

Hafnarstjórn samþykkti að fela bæjarlögmanni, í samráði við formann hafnarstjórnar og hafnarstjóra, að breyta gjaldskránni og auglýsa nýja gjaldskrá í Stjórnartíðindum.

Almenn mál

03

Fjárhagsáætlun 2012

Hafnarstjóri gerði grein fyrir tillögum að fjárhagsáætlun 2012 sem lögð var fram á fundi hafnarstjórnar þann 24. nóvember sl.

Almenn mál

04

Umferð hraðbáta og sæþotna

Lagt fram erindi Eiríks Sigurðssonar, dags. 30/11 2011, sem barst í tölvupósti og varðar umferð sæþotna og hraðskreiðra báta í og utan við umráðasvæði Kópavogshafna.

Hafnarstjórn tekur undir áhyggjur þær sem koma fram í bréfinu og felur hafnarstjóra og formanni að svara bréfritara.

Evert Kr. Evertsson mætti á fundinn kl. 18:00.

Almenn mál

05

Tillaga um verbúðir

Brynjar leggur fram eftirfarandi tillögu:$line$Hafnarstjórn felur hafnarverði að kanna hvort þörf fyrir verbúðir fyrir smábátaeigendur hafi aukist á stór-Reykjavíkursvæðinu og hvort fýsilegt sé að auka umsvif Kópavogshafnar með því að byggja slík mannvirki í einfaldri mynd á Norðurgarði.

Tillagan rædd og samþykkt að fela hafnarverði og formanni hafnarstjórnar að kanna hvort undirliggjandi þörf fyrir verbúðir sé fyrir hendi.

Jóla- og nýársóskir frá formanni með þökk fyrir gott samstarf.