Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umgengni á atvinnusvæðum Kársnesi.

Málsnúmer: 1011166

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2665. fundur

Bókun í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar 3/12 sl.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd telur ótækt að umgengni sem þessi sé liðin og óskar eftir því að umhverfissvið grípi til viðeigandi ráðstafana á kostnað lóðarhafa í samráði við Heilbrigðiseftirlitið. Vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.$line$

Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 27. fundur

Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits til Kópavogsbæjar dags. 13. nóvember 2012. Með bréfinu fylgir afrit bréfs Heilbrigðiseftirlits til lóðarhafa Hafnarbraut 21 og 23, dags. 13. nóvember 2012. Einnig fylgja bréfinu myndir. Afskipti Heilbrigðiseftirlits varða "umgengni á lóðunum, sem er afar slæm. Kemur fram að þar ægi saman alls kyns úrgangi, spilliefnum, hreinu sorpi, alls kyns drasli og lausamuni í algerri óhirðu." Þar sem lóðarhafar komu sér ekki saman um þrif á svæðinu, þá lét Kópavogsbær fjarlægja sorpið. Eftir stendur að umgengni hefur í engu lagast, sbr. bréf Heilbrigðiseftirlitsins. Lóðarhöfum var í bréfinu gefið færi á að koma á framfæri athugasemdum við bréf Heilbrigðiseftirlitsins fyrir 23. nóvember 2012. Heilbrigðiseftirlitinu hafa ekki borist athugasemdir lóðarhafa. "Umhverfis- og samgöngunefnd telur ótækt að umgengni sem þessi sé liðin og óskar eftir því að umhverfissvið grípi til viðeigandi ráðstafana á kostnað lóðarhafa í samráði við Heilbrigðiseftirlitið. Vísað til bæjarráðs til afgreiðslu."

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 21. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 2. apríl 2012 var lögð fram og kynnt aðgerðaráætlun um hreinsun atvinnulóða á Kársnesi.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 14. maí 2012 var málið lagt fram á ný.$line$Málið kynnt og ákveðið að fara í aðgerðir með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 4. júní er staða málsins kynnt.

Samkvæmt könnun umhverfissviðs Kópavogs og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru tvær lóðir sem ekki stóðust kröfur um eldvarnir. Umhverfissvið Kópavogs og SHS vinna áfram að málinu. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að atvinnurekendur og lóðarhafar á Kársnesi hreinsi lóðir sínar sem fyrst.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 20. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 2. apríl 2012 var lögð fram og kynnt aðgerðaráætlun um hreinsun atvinnulóða á Kársnesi.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 14. maí 2012 var málið lagt fram á ný.

Málið kynnt og ákveðið að fara í aðgerðir með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 18. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 5. mars 2012 var lagt fram á ný mál um hreinsun og umgengni á Kársnesi.$line$Nefndin fól umhverfissviði að vinna að aðgerðaráætlun um hreinsun á Kársnesi. $line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar er lögð fram tillaga að aðgerðaráætlun.

Lagt fram og kynnt.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

Lagt fram á ný mál um hreinsun og umgengni á Kársnesi.

Nefndin felur umhverfissviði að vinna að aðgerðaráætlun um hreinsun á Kársnesi.

07

Hafnarstjórn - 78. fundur

Formaður fór yfir minnisblað umhverfissviðs frá 16. 06. 2011.

Hafnarstjórn beinir þeim tilmælum til byggingarfulltrúa að hann fylgi eftir hreinsunarátaki 2011 og beiti tiltækum ráðum, svo sem dagsektum, til að ná fram bættri umgengni á svæðinu.

08

Bæjarráð - 2611. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4/10, upplýsingar sem óskað var eftir í bæjarráði 15/9 sl.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

09

Bæjarráð - 2608. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 14/9, upplýsingar sem óskað var eftir á fundi bæjarstjórnar 13/9, varðandi hreinsunarverkefnið á Kársnesi.

<DIV&gt;Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að koma með frekari upplýsingar, m.a. um stöðu málsins um sl. mánaðarmót, fyrir næsta fund bæjarráðs.</DIV&gt;

10

Bæjarráð - 2602. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4/7, kostnaðarumsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 23/6, þar sem áætlaður kostnaður mun vera um 3 til 5 m.kr. árlega.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

11

Bæjarráð - 2600. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við bæjarráð að tryggt verði fjármagn í áframhaldandi umhverfisvöktun Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis í Kópavogi og vísar í niðurstöður hreinsunarverkefnis í vetur, sbr. lið 12 í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar 20/6.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og óskar eftir kostnaðarumsögn.</DIV&gt;</DIV&gt;

12

Umhverfis- og samgöngunefnd - 5. fundur

Á fundi umhverfisráðs 15. nóvember 2010 var lagt fram erindi Skipulags- og umhverfissviðs dags. 11. nóvember 2010. Erindið fjallar um umgengni á atvinnusvæðum á Kársnesi. $line$Umhverfisráð felur Skipulags- og umhverfissviði að fylgja eftir bréfi Heilbrigðiseftirlits, með áskorun til lóðarhafa um bætta umgengni.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 21. mars 2011 var lögð fram úttekt á Kársnesinu og minnisblað um framvindu verkefnisins.$line$Umhverfis- og samgöngunefndar fól sviðsstjóra umhverfissviðs að vinna áfram að málinu.$line$

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við bæjarráð að tryggt verði fjármagn í áframhaldandi umhverfisvöktun Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis í Kópavogi og vísar í niðurstöður hreinsunarverkefnis í vetur.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

13

Hafnarstjórn - 74. fundur

<DIV&gt;Hafnarstjórn óskar eftir upplýsingum frá sviðsstjóra umhverfissviðs um hvaða framkvæmdir eiga sér stað á lóð Hafnarbrautar 9.</DIV&gt;

14

Umhverfis- og samgöngunefnd - 1. fundur

Á fundi umhverfisráðs 15. nóvember 2010 var lagt fram erindi Skipulags- og umhverfissviðs dags. 11. nóvember 2010. Erindið fjallar um umgengni á atvinnusvæðum á Kársnesi. $line$Umhverfisráð felur Skipulags- og umhverfissviði að fylgja eftir bréfi Heilbrigðiseftirlits, með áskorun til lóðarhafa um bætta umgengni.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 21. mars 2011 var lögð fram úttekt á Kársnesinu og minnisblað um framvindu verkefnisins.$line$ $line$

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra að vinna að málinu.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

15

Skipulagsnefnd - 1184. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 16. nóvember 2010 var lagt fram erindi Skipulags- og umhverfissviðs dags. 11. nóvember 2010. $line$Erindið fjallar um umgengni á atvinnusvæðum á Kársnesi. $line$

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagnefnd felur Skipulags- og umhverfissviði að fylgja eftir bréfi Heilbrigðiseftirlits, með áskorun til lóðarhafa um bætta umgengni. Einnig verði íbúasamtökum á Kársnesi kynnt fyrirhugað hreinsunarátak.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

16

Umhverfisráð - 496. fundur

Á fundi umhverfisráðs 15. nóvember 2010 var lagt fram erindi Skipulags- og umhverfissviðs dags. 11. nóvember 2010. Erindið fjallar um umgengni á atvinnusvæðum á Kársnesi. $line$

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;<DIV&gt;Umhverfisráð felur Skipulags- og umhverfissviði að fylgja eftir bréfi Heilbrigðiseftirlits, með áskorun til lóðarhafa um bætta umgengni.</DIV&gt;</STRONG&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;