Hafnarstjórn - 92. fundur
að Bakkabraut 9
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - hafnarstjóri
- Erlendur H. Geirdal - varafulltrúi
- Jón Daði Ólafsson - formaður
- Ómar Stefánsson - varafulltrúi
- Gísli Steinar Skarphéðinsson - aðalmaður
- Júlíus Skúlason - starfsmaður nefndar
- Stefán Loftur Stefánsson - embættismaður
Ritari
- Ármann Kr. Ólafsson
Dagskrá fundar
Gjaldskráin tekur mið af almennum verðlagshækkunum hjá Kópavogsbæ eða 3%. Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar, gerði grein fyrir málinu.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Stefán L. Stefánsson skýrði frá því að þegar væri hafin söfnun á grjóti sem fellur til vegna framkvæmda í Reykjavík, sem hefði umtalsverðan sparnað í för með sér. Verkefnið verður unnið í nokkrum áföngum.
Hafnarstjórn beinir því til umhverfissviðs að kanna stöðu grjótsöfnunar á fyllingu við Ými.
Hafnarvörður gerði grein fyrir geymslu tækja og vinnuvéla, sem komið er fyrir í leyfisleysi á hafnarsvæði.
Hafnarstjórn undirstrikar að öll slík geymsla er óheimil nema með sérstöku leyfi hafnarvarðar.
Hafnarverði falið að kanna möguleika á að bæta vöktun með öryggismyndavélum á hafnarsvæði.